BMW e30 325i 1990

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

BMW e30 325i 1990

Postby oskard » Sat 06. Sep 2003 06:05

BMW e30 325i 1990


Jæja, núna ætlar Halli að selja bílinn sinn ef að viðunandi
verð fæst. Um er að ræða BMW 325i sem er búinn að
vera í uppgerð síðustu mánuði. Þegar Halli fékk bílinn var
hann ekinn um 139 þúsund. ATH að boddýið er er allveg
100% á þessum bíl, það rið sem var í bílnum var skorið
úr og soðið heilt stykki í staðinn.

    16" Borbet felgur (vantar 1 stk, fæst í Tómó og sennilega GST)
    Ráðherra svartur (allur nýmálaður, gólf,innan í hurðar, allstaðar)
    Hálfleðraðir Recaro sportstólar
    Nýupptekið hedd
    Green loftsía (cone)
    Algjörlega ryðlaus
    Rafdrifin topplúga
    Rafmagn í rúðum
    Filmur í öllum rúðum nema framrúðu
    Ný framrúða
    Allir bodyhlutir original
    Allar fóðringar í gírstöng og drifbúkkum að aftan nýjar
    Nýlegir Bilstein demparar að aftan


Það á eftir að "klára" bílinn, það vantar semsagt
1 stk felgu og það þarf að kaupa kitt á hann, original
e30 fram og afturstuðarar fylgja.

Þegar það er búið að kaupa kitt og felgu á bílinn og
klára að raða honum saman verður þetta án efa
flottasta og besta eintak af e30 á íslandi.

Áhugasamir og aðeins þeir sem eru með peninga milli
handanna
hafið samband við Halla í síma 6965847verðmiðinn er einhverstaðar í kringum 400-450 þúsund.
Einnig get ég svarað spurningum í EP hérna á BMWkrafti.



Takk fyrir,
Óskar.
oskard
 

Postby oskard » Sat 06. Sep 2003 11:50

Brandarar vegna stafsetningavillna í auglýsingu vinsamlega afþakkaðir.
oskard
 

Postby Guest » Tue 09. Sep 2003 21:04

hvernig væri að setja inn myndir af gripnum!?
Guest
 


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 78 guests