bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Myndirnar komnar https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=97 |
Page 1 of 1 |
Author: | Gunni [ Sun 22. Sep 2002 23:34 ] |
Post subject: | Myndirnar komnar |
Jæja myndirnar eru komnar inn undir samkomur/22.09.02 þetta eru hvorki meira né minna en 71 kvikindi í þetta skiptið! njótið vel. |
Author: | DXERON [ Mon 23. Sep 2002 00:16 ] |
Post subject: | Flottar myndir |
cool myndir, gaman að þetta stækkar alltaf og verður flottara..... ![]() |
Author: | Gestur [ Mon 23. Sep 2002 02:16 ] |
Post subject: | |
Sá ykkur á ferðinni í dag, lituð vel út ![]() ![]() Allir á hreinum og flottum bílum! |
Author: | GHR [ Mon 23. Sep 2002 09:32 ] |
Post subject: | |
Virkilega flottar myndir ![]() ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 23. Sep 2002 14:40 ] |
Post subject: | |
Fínar myndir, gaman að sjá E30 M3 bílinn, eitt fallegasta BMW boddíið að mínu mati. |
Author: | gstuning [ Mon 23. Sep 2002 15:03 ] |
Post subject: | |
Ég er ekkert smá ánægður með hvað klúbburinn nær að stækka hratt, ég og stefán töluðum um svona oft, en aldrei varð neitt úr, Kúl myndir, flott í húddunum hjá okkur ![]() Allir flottir |
Author: | Gunni [ Mon 23. Sep 2002 15:46 ] |
Post subject: | |
jamm ég er þokkalega sammála því. þetta hefur alltaf verið draumur sem varð svo lox að veruleika ![]() ![]() ![]() |
Author: | Vergo [ Mon 23. Sep 2002 19:07 ] |
Post subject: | Fyrir þá sem vilja |
Ef það er einhver sem langar í myndirnar sem við bræðurnir tókum á samkomuni þá er hægt að nálgast þær hér í fullri stærð ein .zip skrá (5.6 mb.) http://www.vergo.is/upload/Myndir/BMWKraftur.com.zip Annars er hægt að skoða myndirnar hérna. http://www.vergo.is/bmw/samkoma/ Bestu. Vergo |
Author: | Guest [ Tue 24. Sep 2002 02:39 ] |
Post subject: | |
já auðvitað er fyrir öllu að menn séu ánægðir með sitt, þó mér finnist nú margir af þessum bílum ekki mikið myndefni, eins frekar einkennilegt að stilla upp eldgömlum og þreyttum sjérokí með bimmunum, annars ekkert persónulegt, ég hef gaman að síðuni ykkar, mætti vera meira um greinar og spjall um sjaldgæfar týpur af bmw og þessháttar, gangi ykkur vel ! ![]() |
Author: | bebecar [ Tue 24. Sep 2002 10:05 ] |
Post subject: | |
Allir bimmar eru flottir, sumir eru bara verulega flottir ![]() |
Author: | Gunni [ Tue 24. Sep 2002 14:27 ] |
Post subject: | |
Anonymous wrote: já auðvitað er fyrir öllu að menn séu ánægðir með sitt, þó mér finnist nú margir af þessum bílum ekki mikið myndefni, eins frekar einkennilegt að stilla upp eldgömlum og þreyttum sjérokí með bimmunum, annars ekkert persónulegt, ég hef gaman að síðuni ykkar, mætti vera meira um greinar og spjall um sjaldgæfar týpur af bmw og þessháttar, gangi ykkur vel !
![]() það þarf þá einhver að skrifa greinar. það er ekkert mál að bæta inn einhverjum sniðugum greinum við á síðuna, endilega sendið greinar á mig ![]() |
Author: | DXERON [ Wed 25. Sep 2002 00:54 ] |
Post subject: | Cherokinn ekki þreytti..... |
Anonymous wrote: já auðvitað er fyrir öllu að menn séu ánægðir með sitt, þó mér finnist nú margir af þessum bílum ekki mikið myndefni, eins frekar einkennilegt að "stilla upp eldgömlum og þreyttum sjérokí með bimmunum", annars ekkert persónulegt, ég hef gaman að síðuni ykkar, mætti vera meira um greinar og spjall um sjaldgæfar týpur af bmw og þessháttar, gangi ykkur vel ! alltaf þarf þetta að vera svona að geta ekki skrifað undir nafni. bara láta vita að cherokinn er ekki eldgamall(vilt þú ekki fá spjall um eldri bimma en cherokeinn hvað heita þeir þá hundgamlir?) og hann er nú ekki svo rosalega þreyttur, 180 hestarnir vinna enn fyrir sínu. Ástæðan að ég skuli vera á jeep ekki BMW er að ég hef ekki efni á að setja hann á götuna starx. en þar sem ég er mikill áhuga maður eins og flestir hér á spjallinu um BMW mæti ég á honum þar til ég kemst á bimmanum. öruggleg flestum finnst óþarfi að rakka niður á spjallinu, þetta er of lítið land til þess. (hef fylgst með öðrum spjallþráðum lenda í því,) Heldur eigum við að hafa þetta á léttu nótunum og hafa gaman af.!!!! jæja hætti nú þessu rugli. Davíð á Cherokee og BMW inní skúr. ![]() |
Author: | Guest [ Wed 25. Sep 2002 01:02 ] |
Post subject: | |
No hard feelings strákar mínir, ég var nú bara aðeins að skemmta skrattanum í sjálfum mér með því að sjá hvort ég gæti ekki aðeins æst ykkur upp, það er stundum ágætt að fá dæluna aðeins til að pumpa hraðar, allt í góðu samt ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |