bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hárfínar sprungur á ljósaglerjunum báðum megin á E-46 https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=897 |
Page 1 of 1 |
Author: | Gummi [ Sun 23. Feb 2003 23:41 ] |
Post subject: | Hárfínar sprungur á ljósaglerjunum báðum megin á E-46 |
Jæja í gær var ég að þrífa bílinn sem er orðinn tæplega 2 ára og tók eftir að það eru hárfínar sprungur á glerinu einmitt þar sem ljósgeislinn lendir. Þetta er eins á báðum ljósunum. Ég er ekki sáttur við þetta og mun koma til með að sína þeim í B&L þetta og ég ætla að fá ný ljós. En ég er að spá hvort einhverjir aðrir E-46 eða E-39 eigendur hafi lent í þessu sama? |
Author: | hlynurst [ Sun 23. Feb 2003 23:48 ] |
Post subject: | |
Heldur þú að þeir gefa ekki þau svör að þetta er örugglega eftir steinkast eða eitthvað...? Ég stórefast um að þeir láta þig fá ný ljós nema þetta sé viðurkenndur galli. |
Author: | iar [ Mon 24. Feb 2003 18:14 ] |
Post subject: | |
Hef ekki tekið eftir þessu á mínum E46 en skal athuga betur og láta vita. |
Author: | DXERON [ Mon 24. Feb 2003 19:35 ] |
Post subject: | |
þetta kemur ef þú ert með plast ljós og notar ekki gæða perur... sem eru ekki með uv stop(stoppar útfjólubláa geisla frá perunni sem plast þolir illa) allavega hef ég séð þetta á nýlegum bmw sem var nýbúinn að skipta um perur og hárfínar sprungur mynduðust í plastinu í hring sem geislinn var. |
Author: | Gummi [ Tue 25. Feb 2003 19:47 ] |
Post subject: | |
Í fyrsta lagi þá er þetta ekki steinkast. Ég þekki þannig sprungur og einnig eru líkurnar á því að steinar lendi 2var á samastað á glerinu sitt hvoru megin örugglega sáralittlar. Ok ef þetta er plexigler þá er þessi áhrif UV geislunar eitthvað sem ég kannast við en það gerist vegna þess að fjölliðurnar í glerinu styttast við að fá UV ljós á sig og koma þá þessar fínu sprungur. Ef þetta er er málið, af hverju var ég ekki láttinn vita af þessu þegar bíllinn var keyptur? Af hverju hef ég aldrei séð þetta á golf eða öðrum bílum? Það er ekki víst að þessi galli veiki glerið mikið eða þá að það minnki birtu í gegn en þetta er BMW og mér finnst þetta eigi ekki að vera. ![]() Næsta í stöðunni er allravegna að kaupa perrur með UV vörn. Hvar fæ ég þær? |
Author: | DXERON [ Thu 27. Feb 2003 10:22 ] |
Post subject: | |
við seljum perur frá stillingu (phillips) og þær eru með uv block.. |
Author: | Gummi [ Sat 01. Mar 2003 23:33 ] |
Post subject: | |
Ég fór niður í Olís og perurnar sem þar eru seldar eiga að vera með UV-stop en eitthvað er það ekki að virka. |
Author: | Propane [ Mon 03. Mar 2003 11:47 ] |
Post subject: | |
Er þetta ekki hringlaga skemmd í glerinu, eins og glerið sé sviðið? Ég var búinn að heyra einhversstaðar að þetta sé gelli í glerinu. |
Author: | Gummi [ Wed 05. Mar 2003 00:18 ] |
Post subject: | |
þetta eru margar örsmáar sprungur í glerinu nákvæmlega þar sem geislin lendir á því. |
Author: | GHR [ Wed 05. Mar 2003 11:30 ] |
Post subject: | |
Eru ekki bara að brenna glerið??? Hefur oft gerst ef maður er með Xenon perur (100W) - en sleppur oftast með 55W perunni. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |