| bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
| AMuS 25 – BMW selst vel https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=8498 |
Page 1 of 1 |
| Author: | Nökkvi [ Wed 08. Dec 2004 17:37 ] |
| Post subject: | AMuS 25 – BMW selst vel |
Þrátt fyrir að nýr þristur komi næsta vor þá selst sá gamli enn mjög vel. Hann var önnur söluhæsta gerðin í Þýskalandi í október og það seldust 22,2 % fleiri þristar í október í ár en í fyrra. Yfir allt árið er þó minnkun á sölu um 16,9 %. Fimman hækkar sig úr 14. í 5. sæti yfir söluhæstu gerðir í október og var með 57,8 % aukningu miðað við sama mánuð í fyrra og 39,5 % miðað við árið í fyrra. BMW ásinn er 23. söluhæsta gerðin, X5 er í 36. sæti og X3 í því 43. Samtals er BMW þriðja söluhæsta tegundin í Þýskalandi á eftir Volkswagen og Mercedes með 10,6 % markaðshlutdeild. Athyglisvert er að söluaukningin í október síðastliðinn miðað við október í fyrra er 56 % sem ótrúlegt. Ef miðað er við allt árið þá er aukningin 10,5 %. Það er því greinilegt að BMW er að gera góða hluti í heimalandinu.
|
|
| Author: | jonthor [ Thu 09. Dec 2004 08:55 ] |
| Post subject: | |
Mér finnst enn E46 coupe ennþá fallegasti bíll sem BMW framleiðir |
|
| Author: | jth [ Thu 09. Dec 2004 16:16 ] |
| Post subject: | |
Sammála! |
|
| Author: | gstuning [ Thu 09. Dec 2004 16:36 ] |
| Post subject: | |
jonthor wrote: Mér finnst enn E46 coupe ennþá fallegasti bíll sem BMW framleiðir
330Ci er algjört Bjútí Hérna á þessi E46 heima
|
|
| Author: | BlitZ3r [ Thu 09. Dec 2004 21:47 ] |
| Post subject: | |
SLEFFF
|
|
| Author: | Jss [ Fri 10. Dec 2004 16:00 ] |
| Post subject: | |
Geggjaður bíll, reyndar ekki Ci. |
|
| Page 1 of 1 | All times are UTC |
| Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |
|