bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
FORCE 750il kominn í gagnið aftur https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=8280 |
Page 1 of 2 |
Author: | force` [ Mon 22. Nov 2004 22:41 ] |
Post subject: | FORCE 750il kominn í gagnið aftur |
Jæja þá er loksins búið að koma bílnum í gang aftur, og ekki ætlaði það að vera auðvelt. Byrjaði á því að altenatorinn brann sökum þess að spennustillirinn dó, og það líklega vegna smits frá stýrisdælunni. Fyrir utan það allt að þegar þetta gerist þá sprengir bíllinn fjöldann allann af öryggjum og perum, það var MJÖG notalegt. En jæja, þá hófst leitin að altenator. Það var hægara sagt en gert að finna einn slíkann.. Fann þeas engann á íslandi, það var hamingju efni hið mikla, eða hitt þó heldur. Þannig að vinur minn fór að leita að slíkum á e-bay og fann einn, heldur ódýrann. Kanski grunsamlega ódýr. Við leituðum í öllu sem við fundum uppá að athuga hvort að hann passaði í, og það var hægara sagt en gert, en þeir í B&L voru alveg yndislegir og hjálpuðu mér að klóra mig í gegnum þetta, þarsem þetta var altenator úr 91 850. Jæja þá var það afgreitt og ákveðið að berjast um þennann blessaða altenator. Við unnum, og hann kostaði heila 31.50$. Sem ég verð að segja að er helv gott verð. Svo hófust leiðindin......... Gaurinn sem var seljandi svaraði ekki í nokkra daga eftir að vinur minn vann uppboðið, og loks þegar hann svaraði þá komu bara gátur uppúr honum og ekkert auðskilið hvað hann var að reyna að koma frá sér. Svo eftir margar e-mail sendingar framm og tilbaka komust þeir að niðurstöðu að senda honum peninga fyrir altenatornum og sendingarkostnaði, og svo hófst lengsta bið sem ég hef lent í. Það tók manninn 10 daga að senda hlutinn og lét ekkert vita þegar hann var búinn að henda þessu í póst þannig að ég gat ekkert fylgst með pakkanum. En jæja, á miðvikudegi fékkst svar frá kauða um að pakkinn væri kominn til íslands. Og ekki var þetta búið við það....... Heldur ætlaði tollurinn að rukka mig um tæplega 11.000 kall fyrir þetta. Ég hélt nú EKKI. Ræddi við dömurnar sem sáu um að tolla þetta og eftir talsvert þras og samræður við þær þá fengust þær til að endurreikna þetta á eðlilegann hátt (ekki skv vikt) og fékk verðið talsvert mikið neðar. Og ég var þá sátt, en ég fékk þetta ekki í hendurnar fyrr en á fimmtudegi. Málið með þessa furðulegu tollafgreiðslu var nú það að maðurinn sem sendi hlutinn skrifaði á reikninginn sem fylgdi með að þetta hefði kostað 80$. Ekki 31.50. Sem ég er ekki að fatta. Pirraði mig frekar mikið. Auk þess ákváðu þau bara að tolla þetta eftir vikt...... Og svo töluðu þau í hringi þarna niðurfrá þannig að ég hætti að skilja, en eftir að ég fór að ræða við þau um það að ég væri nú ekki alls óvön innflutningi að þá skildi ég ekki þeirra útreikninga á þessu tollverði því að ég fékk allt aðra tölu, og ég reiknaði það sem "í allra versta falli" og var ekki nærri 11.000 krónur. En jæja, ég var sæl og glöð með fína notaða altenatorinn minn og ætlaði svo sannarlega að koma honum fyrir í greyjið bílnum mínum sem hafði´ þá þegar beðið í tæpar 4 vikur. En nei...... það gekk ekki því það þurfti að færa bílinn um 2-3 km og rafgeymirinn var STEIKTUR. Frábært alveg.... Þannig að þá hófst hin mikla rafgeymaleit (tými ekki að kaupa nýjann alveg strax, enda 140 ampera system í þessu) og það gekk bara ekki neitt, þangað til að kallinn ákvað að fórna rafgeyminum úr torfærugrindinni sinni fyrir mig (þessi elska). Þannig að í kvöld, 4 dögum eftir komu altenatorsins var loksins hægt að gera þetta, og það tókst, altenatorinn komst í, hann passaði, hann virkar og ég er eins hamingjusöm og ég get orðið!! Langaði bara að deila gleðinni ![]() Kveðja |
Author: | srr [ Mon 22. Nov 2004 22:47 ] |
Post subject: | |
Til hamingju Dísa mín ![]() .............og ég er vinurinn í sögunni ![]() |
Author: | Benzari [ Tue 23. Nov 2004 00:27 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Joolli [ Tue 23. Nov 2004 01:32 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() |
Author: | gunnar [ Tue 23. Nov 2004 09:30 ] |
Post subject: | |
Flott að heyra.. En maður þarf greinilega mikla þolinmæði stundum til að panta af ebay ![]() Búinn að vera keyrandi núna bara stanlaust ? ![]() |
Author: | force` [ Tue 23. Nov 2004 12:30 ] |
Post subject: | |
neah bæði og, búin að keyra 73km síðan í gærkvöldi ![]() díses hvað þetta er æðislegt... ég er bara hamingjusamasta stelpa í alheimi sver það ![]() |
Author: | gstuning [ Tue 23. Nov 2004 12:33 ] |
Post subject: | |
Þetta á heima í bílar meðlima!! |
Author: | force` [ Tue 23. Nov 2004 12:36 ] |
Post subject: | |
ha ??? hvernig þá ?? ég get ekki séð afhverju þetta ætti heima þar, ég er ekki að kynna bílinn minn og þetta ER BMW |
Author: | gstuning [ Tue 23. Nov 2004 12:38 ] |
Post subject: | |
Hvernig væri ef allir myndu pósta öllu sem gerðist fyrir bílinn sinn í nýjum þræði hérna í "almennar umræður" það yrði mikið af ekki neinu,, frekar að setja svona inní þráðinn um bílinn þinn í Bílar Meðlima Reyna halda þessu skipulögðu og snyrtilegu ![]() |
Author: | force` [ Tue 23. Nov 2004 12:40 ] |
Post subject: | |
jæja, ég skal passa mig uppá það í frammtíðinni að vera ekki að þvælast fyrir ykkur með svona ótrúlega pointless umræðum. |
Author: | Gunni [ Tue 23. Nov 2004 12:43 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með að bíllinn þinn sé kominn í gangn aftur. Gaman að heyra þegar allt fer vel að lokum. Varðandi hina umræðuna í þessum þræði: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | oskard [ Tue 23. Nov 2004 12:45 ] |
Post subject: | |
ég get nú ekki séð betur en þetta sé pura BMW umræða .... ![]() og er því á réttum stað.... |
Author: | gstuning [ Tue 23. Nov 2004 12:54 ] |
Post subject: | |
Ég er bara að segja að mér finnst þetta henta best í þræðinum um bílinn hennar Force, Það er ekkert að póstinum AT ALL, mitt persónulega og það sem virðist vera bara mitt eigið álit er að þetta hefði passað betur í þráðinn um bílinn þinn |
Author: | Kristjan PGT [ Tue 23. Nov 2004 14:09 ] |
Post subject: | |
Það er nú gott að þér finnst það. |
Author: | force` [ Tue 23. Nov 2004 22:48 ] |
Post subject: | |
gstuning, ég svona persónulega nenni ekki að lesa 17 bls af einhverju um sama bílinn, hvað þá róta og leita í honum að því hvar ég var að lesa síðast, eða eitthvað slíkt, mér finnast þræðir yfir 3 bls vera orðnir of langir, en það er bara ég, mér finnst mjög tímafrekt að skoða þá þræði, enda hef ég engann þráð skoðað í galleríi sem er kominn yfir 5 bls, ég hef bara ekki þolinmæði í svona endalaust jakk. Þessvegna finndist mér mikið skemmtilegra að heyra eitthvað sem er svona frábrugðið "æ það sprakk hjá mér" inná almennu spjalli, eins og þessi saga sem ég var að segja, það er ekki eins og ég hefði verið að segja eingöngu "ég er búin að laga bílinn minn", heldur var þetta bara þokkalegasta saga, og svona hélt að einhver hefði áhuga á því að lesa þessa hrakfallasögu um þennann altenator. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |