Page 1 of 2

e30 í árekstri á suðurnesjunum

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 00:54
by íbbi_
Image

full frétt.
Farþegi pallbifreiðar kastaðist nokkra metra inn á bílastæði við Faxabrautina í kvöld þegar fólksbifreið lenti í árekstri við pallbifreiðina. Slysið atvikaðist þannig að ökumaður fólksbifreiðar ók austur Faxabraut og missti þar stjórn á bifreið sinni í snjó og hálku. Við það snérist bifreiðin á veginum og hafnaði á pallbifreið sem var stopp í vegarkantinum og var að hleypa út farþega.
Við höggið kastaðist farþeginn nokkra metra inn í innkeyrslu við götuna. Lögregla og sjúkralið voru þegar kölluð til og var maðurinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Hann kenndi sér meins í læri, en var ekki talinn alvarlega slasaður. Umtalsvert eignatjón varð á bílum í árekstrinum.

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 01:49
by Fieldy
Aumingja E30,, og farþeginn.

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 10:05
by gstuning
Þetta var geðveikt hreinn 320i sem því miður átti ekki nógu flinkann ökumann sem eiganda,

bara gott að ég lagði ekki út á götu því að þetta er sami staðurinn og var keyrt á 325is bílinn minn síðasta vor!!!! alveg sömu kringumstæður líka

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 10:36
by oskard
gstuning wrote:Þetta var geðveikt hreinn 320i



var hann ný búinn að bóna og keyrði svo bara á ? :shock: :naughty:

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 10:52
by gstuning
oskard wrote:
gstuning wrote:Þetta var geðveikt hreinn 320i



var hann ný búinn að bóna og keyrði svo bara á ? :shock: :naughty:


Ekki svo viss um það, ég held að ég hafi verið augljóslega að meina að hann var í góðu ástandi,
:wink:

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 16:16
by Raggi M5
gstuning wrote:Þetta var geðveikt hreinn 320i sem því miður átti ekki nógu flinkann ökumann sem eiganda,

bara gott að ég lagði ekki út á götu því að þetta er sami staðurinn og var keyrt á 325is bílinn minn síðasta vor!!!! alveg sömu kringumstæður líka


Hann hefði lítið þrumað á bílinn þinn ef hann hefði verið þar sem þú leggur honum oft. Fór og kíkti á þetta, bara sorglegt, fallegur E-30 þarna á ferð. Talaði við strákinn hann sagðist hafa verið á 50km hraða, :roll: hann er á sumardekkjum og með fullann bíl af stelpum, smá show-off í gangi held ég 8)

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 16:18
by gstuning
Raggi M5 wrote:
gstuning wrote:Þetta var geðveikt hreinn 320i sem því miður átti ekki nógu flinkann ökumann sem eiganda,

bara gott að ég lagði ekki út á götu því að þetta er sami staðurinn og var keyrt á 325is bílinn minn síðasta vor!!!! alveg sömu kringumstæður líka


Hann hefði lítið þrumað á bílinn þinn ef hann hefði verið þar sem þú leggur honum oft. Fór og kíkti á þetta, bara sorglegt, fallegur E-30 þarna á ferð. Talaði við strákinn hann sagðist hafa verið á 50km hraða, :roll: hann er á sumardekkjum og með fullann bíl af stelpum, smá show-off í gangi held ég 8)


Ekki nógu sniðugt, ég hefði nú kíkt út til að sjá ef ég hefði vitað að þarna var E30 á ferð,

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 16:20
by Raggi M5
Hann lennti framann á vinnubíl frá Nesprýði, ef hann hefði ekki verið þarna þá hefði hann tekið grindverkið þitt aftur :D
Hjólastellið var í kássu að framann á Bimmanum.

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 16:32
by oskard
gunni... þú verður að drífa þig og FLYTJA áður einhver trashar einn en bílinn þinn !

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 16:57
by Raggi M5
oskard wrote:gunni... þú verður að drífa þig og FLYTJA áður einhver trashar einn en bílinn þinn !


Hann ætti nú að sleppa ef hann geymir hann í innkeyrslunni 7-9-13 :D

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 17:53
by Bjarki
Spurning um að fá að geyma bíla fyrir utan hjá Gunna sem erfitt er að selja eða maður er orðinn leiður á :o

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 19:03
by Haffi
hehehe 8) :lol:

PostPosted: Wed 17. Nov 2004 20:07
by srr
Bjarki wrote:Spurning um að fá að geyma bíla fyrir utan hjá Gunna sem erfitt er að selja eða maður er orðinn leiður á :o

Þú GETUR EKKI verið að tala um BMW í þessum orðum? :shock:

PostPosted: Thu 18. Nov 2004 00:15
by oskard
srr wrote:
Bjarki wrote:Spurning um að fá að geyma bíla fyrir utan hjá Gunna sem erfitt er að selja eða maður er orðinn leiður á :o

Þú GETUR EKKI verið að tala um BMW í þessum orðum? :shock:


það getur verið erfitt að selja þá eins og alla aðra bíla.

PostPosted: Thu 18. Nov 2004 10:26
by íbbi_
og einnig getur maður orðið þreyttur á þeim rétt eins og öðruym bílum :? samt engan vegin málið hjá mér 8)