bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Titringur í afturdekkjum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=82 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarki [ Thu 19. Sep 2002 09:16 ] |
Post subject: | Titringur í afturdekkjum |
Jæja þá er eitthvað farið að klikka! Þegar ég legg af stað þá er eins og afturendinn á bílnum fari upp og niður! En þegar ég er kominn á meiri hraða þá hverfur þetta, en þó má greina þennan titring á meiri hraða. En verstur er hann þegar tekið er af stað sérstaklega þegar ég er að keyra út götuna heima, maður gæti haldið að það séu ójöfnur í malbikinu en svo er ekki. Það gæti verið að dekkin séu komin úr jafnvægi en mér finnst það ótrúlegt. Annars er það slit í drifinu eða einhverjir boddípúðar að aftan. Öll ráð vel þegin. Ég er ekki búinn að kíkja undir bílinn ennþá en geri það um næstu helgi. |
Author: | saemi [ Thu 19. Sep 2002 11:50 ] |
Post subject: | |
Án þess að ég þekki þetta boddí, þekki bara eldra E23 boddíið, þá hljómar þetta svolítið eins og slitin gúmmí í spyrnunum, þ.e. sá hluti sem festir hjólin við boddíið ![]() Sæmi |
Author: | bebecar [ Thu 19. Sep 2002 12:48 ] |
Post subject: | |
Ég myndi segja sama og Sæmi, ég er nýbúin að skipta um þetta á mínum bíl og lýsingin er mjög svipuð þó svo þetta hafi nú ekki fundist mikið. Aðallega þegar maður tók af stað. |
Author: | Bjarki [ Thu 19. Sep 2002 12:52 ] |
Post subject: | |
Já passar aðalega þegar ég er að taka af stað. |
Author: | bebecar [ Thu 19. Sep 2002 13:54 ] |
Post subject: | |
Bara drífa í að skipta þessu út, en þú verður líklega að fara með hann á verkstæði þar sem þetta er yfirleitt gróið fast. Mig minnir að þetta sé einhver 15-20 þúsund eftir því hvað það gengur vel að ná þessu undan. |
Author: | Bjarki [ Thu 19. Sep 2002 18:41 ] |
Post subject: | |
Ég fer ekki með bílinn á verkstæði, möndla þetta bara sjálfur. |
Author: | Bjarki [ Thu 19. Sep 2002 23:54 ] |
Post subject: | |
Ég er ekki alveg að átta mig á því hvaða gúmmí þetta er. Er það á þessari teikningu? ![]() Þetta er stykkið þar sem dekkið er fest á!! |
Author: | Guest [ Fri 20. Sep 2002 00:34 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Án þess að ég þekki þetta boddí, þekki bara eldra E23 boddíið, þá hljómar þetta svolítið eins og slitin gúmmí í spyrnunum, þ.e. sá hluti sem festir hjólin við boddíið
![]() Sæmi Ekki er þessi bifreið ennþá á götunni? ![]() |
Author: | M110 [ Fri 20. Sep 2002 00:38 ] |
Post subject: | |
Bjarki wrote: Ég er ekki alveg að átta mig á því hvaða gúmmí þetta er.
Er það á þessari teikningu? ![]() Þetta er stykkið þar sem dekkið er fest á!! Þetta gúmmí er Fest á boddíið held, ég flettu uppá undirbrettinu að aftan. |
Author: | saemi [ Fri 20. Sep 2002 08:38 ] |
Post subject: | |
Flettu upp stykkinu sem þetta stykki festist við, þá ættirðu að sjá það! Þessi gúmmí eru í því stykki, sem drifið festist á. Sæmi |
Author: | Bjarki [ Fri 20. Sep 2002 08:39 ] |
Post subject: | |
Þá hlýtur þetta að vera á þessari teikningu: ![]() Þarf maður að taka demparann og gorminn úr til að skipta um þetta? |
Author: | saemi [ Fri 20. Sep 2002 08:40 ] |
Post subject: | |
P.S. auðvitað er þessi bifreið ennþá á götunni (sá sem var að vísa í myndina mína), það er bara búið að skipta um fóðringar ![]() Sæmi |
Author: | bebecar [ Fri 20. Sep 2002 09:54 ] |
Post subject: | |
Þetta er yfirleitt gróið fast, ertu með aðgang að logsuðutæki? |
Author: | saemi [ Fri 20. Sep 2002 11:00 ] |
Post subject: | |
Nei, ekki demparann sjálfann, heldur stykkið sem 2 augun á spyrnunni festast í. Þetta er oftast alveg samgróið, og ég þarf alltaf að saga þetta innanúr til að ná þessu af. Svo að pressa nýja stykkið í. Tekur slatta tíma, og mjög erfitt að komast að þessu ef þetta er ennþá í bílnum. Sæmi |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |