Svezel wrote:Ég sé nú ekki hvernig Golfinn er praktískari þar sem ásinn er nú í 1.lagi stærri og í 2.lagi betur búinn. Svo ætla ég að fullyrða að aksturseiginleikar ássins séu töluvert betri en á golfinum þótt ég hafi ekki ekið ásnum enn.
Mismunur á Golf 2.0 og 120i er líka undir 400þús svo mér finnst nú Golfinn ekkert vera mikið ódýrari. Hingað til hef ég ekki séð eftir auka 400k í BMW framyfir VW og fundist ég alltaf fengið vel mitt fyrir þann pening.
Golfinn hefur aftur á móti stóran kúnnahóp og góða afsögn í gegnum tíðina þótt síðustu módel hafi ekki alveg verið up to standards. Svo er bara spurningin hvernig fólk tekur ásnum en ég held að salan eigi eftir að ganga vel þegar fólk sér hvað það munar litlu á verði þessara bíla.
Golfinn er með mun stærra skott, vegna þess að afturhjóladrifið í Ásinum tekur svo mikið pláss. Ennfremur er meiri pláss í aftursætunum og Ásinn satt að segja ekkert betur búinn. Flest tímarit skora þá jafnháa varðandi búnað.
Ég hef ekki ekið þessa bíla og ég geri ráð fyrir að aksturseiginleikar Ásins séu betri, en þeir sem hafa prófað þessa bíla og borið þá saman segja að munurinn sé ekki töluverður. En misjafn er manna smekkur og eðlilegt að menn á BMW spjallborði séu töluvert hrifnari af aksturseiginleikum Ásins, það liggur í augum uppi. En það er ekki allir á BMW spjallborðum og sennilega fleiri á VAG spjallborði.
Það er hægt að deila fram og til baka, hvað sé ódýr bíll. En a.m.k. kostar Golfinn minna.
Umfjöllum Parkers um BMW 1
Umfjöllum Parkers um Golf IV