bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Umræður í söluþráðum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=7414 |
Page 1 of 2 |
Author: | Svezel [ Tue 14. Sep 2004 10:21 ] |
Post subject: | Umræður í söluþráðum |
Ég var nú að spá hvort við ættum ekki að hætta að vera að skrifa allskonar rugl í söluþræði ef maður hefur engan áhuga á kaupum. Mér finnst það orðið fáránlegt hvernig söluþræðir eru oft komnir á margar bls. og svo snýst kannski helmingurinn ekki einu sinni um vöruna. Ef menn hafa ekki áhuga á vörunni eða hafa ekkert gott um hana að segja þá er oftast best að þegja. Ég er ekkert saklaus af þessu sjálfur en ég held að þetta sé farið að hrjá spjallinu hérna dálítið mikið og er alveg tilbúinn að hætta. Bara mín skoðun ![]() |
Author: | jonthor [ Tue 14. Sep 2004 10:39 ] |
Post subject: | |
Sammála. |
Author: | Gunni [ Tue 14. Sep 2004 10:42 ] |
Post subject: | |
![]() Ég er sammála !! |
Author: | sindrib [ Tue 14. Sep 2004 11:41 ] |
Post subject: | |
er ekki hægt að hafa bara svona kvóta havða meiga koma margir póstar á hvern sölu þráð, eins og hvað 15-20 póstar á hvern. |
Author: | fart [ Tue 14. Sep 2004 11:45 ] |
Post subject: | |
alveg viðbjóðslega leiðinlegt hvað menn þurfa alltaf að commenta eitthvað rugl í söluþræði. |
Author: | Logi [ Tue 14. Sep 2004 11:48 ] |
Post subject: | |
Sammála þessu, allir að taka sig á ![]() |
Author: | sindrib [ Tue 14. Sep 2004 11:49 ] |
Post subject: | |
vá hvað ég er sekur (binni bílasali) ![]() |
Author: | Kull [ Tue 14. Sep 2004 12:02 ] |
Post subject: | |
Alveg sammála. Stjórnendur verða líka að vera duglegir að færa eða henda út ef menn fara út í eitthvað bull. |
Author: | Gunni [ Tue 14. Sep 2004 12:04 ] |
Post subject: | |
Það sem hægt er að gera er tvennt: Allir taki sig saman og hætti þessu eða að söluþráðum verði lokað fyrir póstum, þannig að menn hringi bara í uppgefin númer. Auglýsingin mundi vera inni í einhvern X tíma og detta svo út. Þetta fyrirkomulag er svipað (ef ekki eins) og á kvartmila.is hvað finnst ykkur ? |
Author: | Kull [ Tue 14. Sep 2004 12:09 ] |
Post subject: | |
Er ekki hægt að leyfa mönnum að læsa sínum eigin póstum á þessu spjallborði? Þá gætu menn sett inn auglýsingu og síðan læst þræðinum ef þeir vilja enga umræðu um bílinn. Öðrum finnst kannski allt í lagi að rætt sé um bílinn í söluþræðinum, enda er þetta nú spjallkorkur. |
Author: | íbbi_ [ Tue 14. Sep 2004 12:13 ] |
Post subject: | |
mér finnst nefnilega oft gott þegar fólk spjallar í söludálki hjá mér því þá heldur það auglísinguni uppi, og jafnvel umræðum um bílin, en það þarf bara að passa að að það séu ekki einhverjar Crap umræður þarna sem tengjast ekkert því sem er verið að reyna selja.. mér finnst t.d fínt ef ég auglísi minn e32 og þá skapast einhverjar umræður um e32.. en ef ég auglísi sama bíl og það skapast hörku umræða um S línu benz þá finnst mér það ekki fínt.... |
Author: | sindrib [ Tue 14. Sep 2004 12:37 ] |
Post subject: | |
Kull wrote: Er ekki hægt að leyfa mönnum að læsa sínum eigin póstum á þessu spjallborði?
Þá gætu menn sett inn auglýsingu og síðan læst þræðinum ef þeir vilja enga umræðu um bílinn. Öðrum finnst kannski allt í lagi að rætt sé um bílinn í söluþræðinum, enda er þetta nú spjallkorkur. já ég er sammála þessu, þetta finnst mér góð hugmynd ef hún er framkvæmanleg |
Author: | Svezel [ Tue 14. Sep 2004 12:49 ] |
Post subject: | |
Ég sé ekkert athugavert ef menn hafa eitthvað gáfulegt fram að færa eða spurningar um vöruna. T.d. ef menn hafa skoðað eða prófað bíl sem er til sölu og geta þá sagt að tiltekinn bíll sé flottur eða góður í akstri, en annað sé ég ekki að hafi nokkuð að gera á söluþræði. |
Author: | gstuning [ Tue 14. Sep 2004 13:24 ] |
Post subject: | |
Ég myndi nú vilja segja ykkur frá því ef einhver kæmi hérna að selja BMW eða eitthvað annað og ég vissi sögu bílsins ef hún væri slæm ÉG myndi ekki vilja að kunningjar mínir hérna verði fyrir því að kaupa bíl sem lookar og fílast fínt en er í raun eitthvað annað en seljandi segir, Þetta er opið spjallborð og menn verða einnig að geta tekið því ef einhver kemur og segir eitthvað slæmt um vöruna, sama og að standa á bílasölu að skoða bíl og einhver félagi manns stendur við hliðina á manni og segir manni að þessi bíll sé slæmur, hvað á bílasalinn að vísa félaganum út og tala einn við mann svo að hann komist upp með að selja manni mögulega slæmann bíl Mín hugmynd væri bara að í söluþráðum sé bara rætt um vöruna og að mögulegir kaupendur spyrji spurninga og seljandi svari,, thats it, sleppa öllu spjalli um frændur sína og eitthvað bull,, Reyna að hafa þetta soldið fagmannlegt |
Author: | Gunni [ Tue 14. Sep 2004 13:48 ] |
Post subject: | |
Ef þetta sem gunni segir væri hægt,þ.e. allir mundu fara eftir því væri það lang best. Off-topic umræður eru alltaf opnar til að ræða um frændur sína og allskyns aðra hluti! |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |