bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Allar 6-ur sem eru til á Íslandi 628cs(i), 630cs(i), 635csi)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=724
Page 1 of 10

Author:  saemi [ Tue 04. Feb 2003 17:07 ]
Post subject:  Allar 6-ur sem eru til á Íslandi 628cs(i), 630cs(i), 635csi)

Fur suchmaschine: sexur, 645csi, 635csi, 633csi 628csi, 630csi

Nei, bíllinn sem var auglýstur á 100 kall er silfraður. Strákurinn sem keypti hann hringdi í mig og vantaði drif í hann. Hef ekki heyrt meira af honum. Ég held þetta sé bíllinn sem var beinskiptur en er núna orðinn sjálfskiptur. Þegar ég skoðaði þann bíl var hann í Hafnarfirðinum, og frekar illa sprautaður.

Svo er líka til vel tjónaður blár bíll (klesstur að framan, ég skoðaði hann á Álfhólsveginum fyrir 1-2 árum). Hann var með 3ja stafa R númer. Hann stóð fyrir utan Dominos á Grensásveginum þegar hann var á götunni. Vantar fastanúmerið á hann í safnið mitt :)

Síðan er silfraður bíll í kópavoginum, fyrir neðan Nýbýlaveginn. Hann ZX veit meira um hann (sjá postið um bílana mína) Gæti verið OA 211???

Svo er blá sexa sem var lengi á Selfossi, en er núna komin í bæinn. Stóð (stendur) fyrir utan rétt hjá Tækniþjónustu Bifreiða. Hann er nýsprautaður og lítur sæmilega út, en er búið að ryðbæta svipað og þennan brúna.

Samkvæmt bifreiðaskrá fyrir um ári síðan, þá eru þetta bílarnir á götunni:


HK 218 628csi Blár

MA 310 628csi Hvítur Þessi sem er var (er) til sölu 2002-2003.

HI 939 630cs 1979 Blár Held þessi sé í eilífðarklössun á Ólafsfirði

HO 075 633csi 1977 Blár

HH 159 628csi 1981 Brúnn

Svo er ég með gamla útprentun úr bifreiðaskrá síðan c.a. 1992, þar eru til viðbótar þessir bílar:

IT 691 630cs 1977
HN 259 635csi 1978
OA 211 628csi 1981


Þess utan er að sjálfsögðu bíllinn minn á götunni

SN 898 635csi 1985

Og svo vínrauði bíllinn sem ég man ekki númerið á. Hann er 635csi 1985 eða 1986 módel.

Þessir tveir síðustu eru að öðrum ólöstuðu heillegustu eintökin á Íslandi.

Ef þið vitið betri deili á einhverjum af þessum bílum, eða um fleiri, endilega skrifið þá inn línu!

Sæmi

Author:  bebecar [ Tue 04. Feb 2003 17:23 ]
Post subject: 

Ég man eftir einum mosagrænum hér í kringum 1990... var nokkuð flottur þá.

Author:  Svezel [ Tue 04. Feb 2003 18:27 ]
Post subject: 

Ég gerði heiðarlega tilraun til að kaupa vínrauða 635 bílinn í nóv 1999 en það strandaði á verði :(

Sá bíll er að mig minnir 87 módel og var þá keyrður aðeins 80þús. Hann var sjálfskiptur með svörtum M leðursætum að ég held, þau gáfu allaveganna mjög góðan stuðning og var hægt að stilla á alla vegu.

Ég sé rosalega eftir því að hafa ekki keypt þann bíl en eins og ég sagði gaurinn vildi ekkert minna en 1500þús og það fannst mér full mikið.

Author:  saemi [ Tue 04. Feb 2003 20:17 ]
Post subject: 

Já, þetta passar nema sætin. Þau eru bara venjuleg. Ekki sportsæti (Recaro) eins og í mínum.

En eins og þú segir, þá var hann ekki gefins :!:

En, hann er mjög vel farinn. Örugglega heillegasti bíllinn á landinu.

Sæmi

Author:  Halli [ Tue 04. Feb 2003 20:20 ]
Post subject: 

Ég held að það er 1 svartur svona bíll niðrá Byggðarenda í fossvoginum
og einn númerslausan ekki hengja mig ef ég fer með vitlaust mál :lol:

Author:  saemi [ Tue 04. Feb 2003 20:36 ]
Post subject: 

Hvar er byggðarendi? Veistu eitthvað meira um þann bíl? Hvenær sástu hann?

Og hvar er þessi númerslausi og hvernig er hann?

Sæmi

Author:  Halli [ Tue 04. Feb 2003 22:59 ]
Post subject: 

Það er við sogaveg nær bústaðaveg ég skal kanna þetta betur í nótt þegar ég fer að vinna og pósta þessu í fyramálið

Author:  saemi [ Wed 05. Feb 2003 00:19 ]
Post subject: 

Roger

Author:  Gaui [ Wed 05. Feb 2003 16:49 ]
Post subject: 

tad stendur lika einn 628 held ég á njálsgotu buinn ad sja hanna nokkrum sinnum hann er svartur

Author:  saemi [ Wed 05. Feb 2003 19:04 ]
Post subject: 

Hmmmm... ertu örugglega að tala um sexu?

Ég persónulega hef ekki vitað um neina svarta sexu fyrir utan mína á Íslandi..

Image

Þessi stendur oft niðri í bæ, nálægt Snorrabrautinni.

Sæmi

Author:  sh4rk [ Wed 05. Feb 2003 23:42 ]
Post subject: 

Hummm bara nokkuð flottmynd af bílnum mínum sæmi, en hér eru nokkrir sem ég fann af 6 línunni

UK098 - Óþekktur litur BMW 6 línan 0000
HH159 - Brúnn BMW 6 línan 1981
MA310 - Hvítur BMW 6 línan 1981
HK218 - Blár BMW 6 línan 1982
OA211 - Grár BMW 6 línan 1981 Afskráð að beiðni yfirv. 09.03.1998
HO075 - Blár BMW 6 línan 1977
HN259 - Blár BMW 6 línan 1978 Afskráð 199908271610000
YZ804 - Óþekktur litur BMW 6 línan 0000
SN898 - Svartur BMW 6 línan 1985
ég get látið meiri upplýsingar um þá kannski

Author:  Gaui [ Thu 06. Feb 2003 17:34 ]
Post subject: 

gæti verid ad eg sé ad rugla sé alltaf bara rétt í afturendann á honum . sídan eru líka tvær 628 a bilasolur.is..... :shock:

Author:  oskard [ Thu 06. Feb 2003 18:20 ]
Post subject: 

Fann eina sexu í kópavoginum áðan númerslaus, virðist
hafa verið hvít og er með leðri og fíneríi greinilega einhver
að baslast við að gera hana upp ættla tjékka betur á honum
í kvöld 8)

Author:  saemi [ Thu 06. Feb 2003 18:25 ]
Post subject: 

Já. Þessir á bílasölur.is er nú sennilega sami bíllinn. Reyndar er mjög skrítið hvað verðmunurinn er mikill !

Sæmi

Author:  saemi [ Thu 06. Feb 2003 18:27 ]
Post subject: 

Jahá, hvít og í kópavoginum. Endilega að posta það. Hvar í kópavoginum.

Ég kíkti á mynd sem ég tók þegar ég sá bruna 628csi bílinn uppi á höfða, og hann er HH-159.

Sæmi

Page 1 of 10 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/