Page 1 of 1

Verð á Cabrio

PostPosted: Mon 02. Aug 2004 14:02
by jonthor
Hef oft látið mig dreyma um að kaupa E36 cabrio (svona fyrst maður býr erlendis). En rosalega eru þeir dýrir. Alveg 30-50% (reyndar alveg upp í 100%) dýrari en sambærilegir non-cabrio bílar. Fannst þetta svo mikið að ég athugaði hver er munurinn á nýjum bílum og viti menn.

318i 3.140.000
318ic 3.430.000
318i cabrio 4.130.000

--> 30% munur á saloon og cabrio!

Svo er meiri en 30% munur á eldri bílunum vegna þess að cabrio bílarnir eru sjaldgæfir og vinsælir. Magnað! Svosem bara eðlilegt, markaðurinn ræður jú verðinu! Gott dæmi um hvað það segir lítið að líta alltaf á viðmiðunarverð!

PostPosted: Mon 02. Aug 2004 15:30
by gunnar
Skemmtilegar pælingar hjá þér! Ótrúlegur munur á þessum verðum.

PostPosted: Wed 04. Aug 2004 09:11
by Nökkvi
Kannast við þetta. Langaði alveg ofboðslega mikið í E36 325i Cabrio þegar ég var að leita mér að blæjubíl úti en verðmiðinn var bara of hár. Endaði því á toppeintaki af Audi, ekki eins skemmtilegt en skynsamlegt 8)