Page 1 of 1
Uppfærsla á spjallborðinu

Posted:
Wed 28. Jul 2004 09:49
by arnib
Vorum að enda við að uppfæra spjallborðið okkar upp í nýjustu útgáfu, þ.e. 2.0.10.
Ef þið lendið í einhverjum vandræðum með borðið sem ekki voru til staðar í eldri útgáfunni, vinsamlega sendið mér PM/Einkapóst.
Takk takk.

Posted:
Wed 28. Jul 2004 10:10
by hlynurst
Eru einhverjar nýjungar sem fylgja þessari uppfærslu?


Posted:
Wed 28. Jul 2004 10:48
by arnib
Breytingarnar eru mest megnis lagfæringar á öryggisgöllum og slíku.

Posted:
Wed 28. Jul 2004 11:17
by zazou
Smá bögg...
Finnst ykkur
'Þú hefur engan nýjan póst' ekki dáldið enskt?
Minnir á bækling á íslensku sem var búinn til í þýðingarvél
Hafa adminar aðgang að textastrengjum?

Posted:
Wed 28. Jul 2004 11:23
by Haffi
hafa borðið á ensku! ég skil ekki íslenskuna


Posted:
Wed 28. Jul 2004 12:13
by zazou
Haffi wrote:hafa borðið á ensku! ég skil ekki íslenskuna

Jú liv in Æsland dúd


Posted:
Wed 28. Jul 2004 12:44
by arnib
Ég hef reyndar borðið alltaf sjálfur á ensku, en málið er einfalt, strengirnir eru ekki svona klipptir niður almennt. Þar af leiðandi gerist þetta stundum þar sem íslenskan er með sín föll og allt þetta rugl en enskan gerir bara ráð fyrir einu tilviki af orðinu.
Ef við lögum þetta á þessum stað er ég nokkuð viss um að það birtist villa annarsstaðar.

Posted:
Wed 28. Jul 2004 22:59
by oskard
Fyrir utan það að þessi þýðing er engann veginn á okkar vegum
