bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMWKRAFTUR pre facebook
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=69092
Page 2 of 3

Author:  Lindemann [ Thu 20. Aug 2015 23:26 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Krafturinn er klárlega virkasta íslenska spjallborðið sem ég er inná.....þetta er bara þróunin með öll þessi spjallborð.

Ég held að krafturinn sé ekkert að fara að deyja á næstunni, en auðvitað væri gaman að geta aukið virknina einhvernvegin.

Author:  gardara [ Fri 21. Aug 2015 10:00 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Ef það er eitthvað sem hægt er að gera til þess að auðvelda notkun kraftsins eða gera hann aðgengilegri, þá er ég "all ears".
Er búinn að virkja TapaTalk svo að það er auðvelt að nota kraftinn í snjallsíma, en ég er opinn fyrir fleiri hugmyndum.

Author:  Alpina [ Fri 21. Aug 2015 18:15 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

íbbi_ wrote:
krafturinn hefur þó lifað, flest önnur íslenskt spjallborð eru gjörsamlega látin,


Þetta er staðreynd nefnilega,,,,

ALLIR á fb osfvr

Author:  fart [ Sat 22. Aug 2015 07:02 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Eitt vandamálið er kanski meira tæknilegt...

Hvernig maður t.d. Deilir myndum úr myndasafni iPad, en slíkt er mun auðveldara á Facebook

Author:  iar [ Sat 22. Aug 2015 09:49 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

gardara wrote:
Ef það er eitthvað sem hægt er að gera til þess að auðvelda notkun kraftsins eða gera hann aðgengilegri, þá er ég "all ears".
Er búinn að virkja TapaTalk svo að það er auðvelt að nota kraftinn í snjallsíma, en ég er opinn fyrir fleiri hugmyndum.


Tapatalk er snilld! Appið fór reyndar í eitthvað rugl við síðustu uppfærslu, þeir hafa verið frekar gjarnir á að gera stórfurðulegar og oft drastískar breytingar á user interfaceinu.

fart wrote:
Eitt vandamálið er kanski meira tæknilegt...

Hvernig maður t.d. Deilir myndum úr myndasafni iPad, en slíkt er mun auðveldara á Facebook


Þetta var nokkuð þægilegt minnir mig með Tapatalk appinu, amk. á Android.. væntanlega svipað á iPad.

Author:  gardara [ Sat 22. Aug 2015 10:37 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

fart wrote:
Eitt vandamálið er kanski meira tæknilegt...

Hvernig maður t.d. Deilir myndum úr myndasafni iPad, en slíkt er mun auðveldara á Facebook

Þetta er eitthvað sem ég skal skoða, hvort eg geti græjað einhvern browse takka eða slíkt fyrir myndir þegar maður setur inn innlegg

Author:  BMW_Owner [ Sat 22. Aug 2015 12:31 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

:thup:

Author:  ///MR HUNG [ Tue 25. Aug 2015 14:30 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

íbbi_ wrote:
krafturinn hefur þó lifað, flest önnur íslenskt spjallborð eru gjörsamlega látin,

Grunar að jeppaspjallið sé það virkasta í bransanum í dag.

Author:  Jón Ragnar [ Tue 25. Aug 2015 16:41 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Mikið er ég sammála öllum

Hinsvegar er Facebook notkun að minnka mjög mikið hjá fólki.

BMW á Íslandi er frekar léleg grúppa sem hefur versnað mjög mikið.


Við þurfum bara að vera dugleg að halda Kraftinum við, ég kíki reglulega hingað inn og sé oft eitthvað nýtt og gott

Author:  HAMAR [ Sat 12. Sep 2015 00:28 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Image

Author:  xiberius [ Fri 19. Aug 2016 13:43 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Ég var hérna fyrir mörgum árum þegar ég átti BMW, en hvarf þegar hann eyðilagðist í árekstri. Sakna félagsskaparins og spjallsins og fæ engan vegin sömu tilfinningu frá FB. Þar er bara ekki boðið upp á sama skipulag og "spjall" er nánast ekki til.

Fídusinn að sjá ólesna pósta t.d. er eitthvað sem ég nýtti mér óspart á sínum tíma, og fyrir hann er nóg að logga sig inn einu sinni á dag. Bara um að gera að kíkja inn einu sinni á dag, og ekki láta duga að "browsa" póstana heldur segja eitthvað þar sem eitthvað áhugavert er, þó læk-takkan vanti! ;-)

Mig langar (eins og nánast alla fyrrverandi BMW eigendur) í annan BMW, en hef bara ekki peninga til þess strax. Er einhver venjulegur launamaður sem fór ekki illa út úr þessu hruni? (skal samt láta vera að ræða stjórnmál hérna) Ég er allavegana til í að leggja mitt af mörkum til að lífga þetta spjall við, ég hef ekki trú á að það þurfi mikið. Þetta var allavegana góður hópur á sínum tíma.

Skelli í einn þráð seinna í dag þar sem þeir sem eru virkir henda inn "selfie" (allavegana þeir sem þora!) og mynd af núverandi bíl(um)!

Author:  nikolaos1962 [ Sun 21. Aug 2016 05:41 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

:thup:

Author:  jens [ Sun 21. Aug 2016 21:24 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Sammála því sem hefur komið hér fram.

Vona svo sannarlega að þetta spjall standi af sér þessa lægð en finnst eins og hlut af þessu sé að menn eru minna að gera og græja svona almennt eins og áður.

Finnst fb ekki hafa náð sama anda og spjallið en ég skráði mig 2003 og eignaðist marga kunningja sem ég er enn í einhverju sambandi við um hitt og þetta í sambandi BMW og fl.

Author:  Fatandre [ Sun 04. Sep 2016 14:08 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Þetta spjall er svo sannarlega dautt.
Sjálfur er ég mikið forum maður. Finnst það miklu betra tól en facebook til að halda umræður vegna vanda osf.
Lífgum aðeins upp á þetta strákar

Author:  Emil Örn [ Sun 04. Sep 2016 16:48 ]
Post subject:  Re: BMWKRAFTUR pre facebook

Ég kíki hingað 2-3svar á dag en er alltof latur við að tjá mig. Kannski að maður reyni að taka á því til að halda lífi í þessu.

Page 2 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/