Slitin innrétting í E90

Posted:
Sat 04. Apr 2015 17:43
by jonasarn
Var að skoða E90 á bílasölu, er bara keyrður 88 þús en start/stop takkinn og armurinn á hurðinni að innan eru slitin.
(takkinn orðinn hvítur og húðin á hurðar-panelnum farin að flagna af)
Er það alveg eðlilegt á svona lítið eknum bíl?
Re: Slitin innrétting í E90

Posted:
Tue 07. Apr 2015 18:25
by Jökull94
Það finnst mér skrítið miðað við lítið ekinn bíl..
Minn 2006 árg. var að detta í 170 þús. og sér varla á bílnum að hann sé keyrður mikið meira en 50 þús, kannski var ég bara heppinn

Re: Slitin innrétting í E90

Posted:
Wed 08. Apr 2015 22:29
by Jónas Helgi
Já, handfangið er bara framleiðslugalli, húðin á því mjúk og lin og byrjar að flagna fljótlega eftir að það rispast og þegar hún byrjar að flagna þá fer hún öll mjög fljótlega.
Hinsvegar ef það er keypt replacement þá þarf reyndar að kaupa allt unitið, ekki allt hurðarspjaldið en allan arminn með handfanginu og það er búið að betrum bæta húðina. En þetta kostar um $300 síðast þegar ég skoðaði.
Minn e90 var ekinn 130.000 var með ljótum start/stop takka og líka e87 bíllinn hjá konunni sem var ekinn rúmlega 70.000
*edit*
e90 bíllinn sem ég átti var með ljósgrárri innréttingu og það voru nuddför útum allt á henni, hægri löppin/hnéð á mér lyggur utaní innréttingunni þegar ég keyri og það var byrjað að myndast nudd far þar og á miðjustokknum beint við hliðiná sætinu eftir að fyrri eigandi nuddaði örugglega afturendanum á sér við að koma feita rassgatinu á sér inn og útúr bílnum.