Page 1 of 1

Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Sun 11. Jan 2015 16:46
by 98.OKT
Ég ætla að panta í bílinn hjá mér fjarlægðarskynjara af ebay og var að spá hver raunverulegur munur á þeim er þar sem sumir eru á 25$ eins og þessi http://www.ebay.com/itm/BMW-E38-E39-E53 ... 33783effce

á meðan aðriri eru á 55$ http://www.ebay.com/itm/BMW-parking-ult ... f8&vxp=mtr

og enn aðrir á 130$ http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=66&fg=05

Svo töluðu þeir í Eðalbílumum að þeir kostuðu um 35.000.kr stk hérna á íslandi (væntarlega í BL)

Svo ég vil endilega vita hvort menn hafi reynslu af þessum ódýrari skynjurum og hvort þeir yfir höfuð virki eða ekki :)

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Sun 11. Jan 2015 21:07
by Daníel Már
Eiga að vera sömu skynjarar í land rover / range rover og þeir kosta talsvert minna enn BMW skynjari hef eg heyrt

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Mon 12. Jan 2015 20:50
by 98.OKT
Já það væri efaust þess virði að skoða það ef ég mundi versla þá á íslandi en langar mikið til að prófa þessa ódýrari skynjara en væri til í að vita hvort menn hafi einhverja reynslu af þeim :) Á ég að trúa því að enginn hafi keypt svona skynjara sjálfir að utan sem eru ekki original?? :O

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Sat 17. Jan 2015 15:10
by íbbi_
hafandi átt orðið nokkra bimma með fjarlægðarskynjurum, og vesenið á þeim. þá held ég að það sé bara alls ekki vitlaust að prufa ódýrari, ef hann er svo í lagi þá bara besta mál. ef ekki þá veistu það allavega.

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Sat 17. Jan 2015 19:13
by 98.OKT
Já ég ætla að prufa þá og í versta falli virka þeir bara ekki, allavega vel þess virði :)

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Mon 19. Jan 2015 18:55
by Lindemann
Það bilaði hjá mér skynjari, svo það kom alltaf aðvörunarpípið um leið og ég setti í bakkgír.

Ég keypti svo einhverja hræódýra skynjara af ebay sem voru af hinni víðfrægu tegund "GERMANY" og það er allt annað líf..............nú kemur aldrei neitt píp :lol:


En ef þú vilt fá einhverja virkni þá mæli ég með að kaupa eitthvert merki, þó það sé ódýrt og kínverskt er það örugglega betra að einhver sé til í að setja nafnið sitt á það! :wink:

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Mon 19. Jan 2015 20:58
by 98.OKT
Já það er satt. Mun skoða þetta vel. Nenni varla að fara að eyða tíma að rífa stuðarann af og græja þetta fyrir kannski ekki neitt. Maður er alltaf hálf smeikur við noname rafmagnsvörur frá kína :?

Re: Reynsla af ódýrum fjarlægðarskynjurum?

PostPosted: Mon 19. Jan 2015 21:08
by 98.OKT
Eru það þessir skynjarar sem þú ert að tala um sem virkuðu ekki?

http://www.ebay.com/itm/BMW-E38-E39-E53 ... 4ab94282a3