bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ég fann draumabílinn minn! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=65 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svezel [ Sun 15. Sep 2002 11:32 ] |
Post subject: | Ég fann draumabílinn minn! |
Ég var að skoða mobile.de eins og oft áður er ég rakst á draumabílinn minn: 1990 E-34 BMW ALPINA B10 BiTurbo. Hann er keyrður 150 þús (ekki rassgat), svartur metallic á 17" og nice. Það er sett á hann 12 þús evrur, svo spurningin er: Hvað er svona bíll kominn hér á götuna á? P.s. er alvarlega farinn að spá í þetta. |
Author: | Djofullinn [ Sun 15. Sep 2002 11:59 ] |
Post subject: | |
Þetta eru svoooo geðveikir!! Þessi bíll mundi kosta um 2 milljónir til landsins. Ég prófaði einusinni bílinn sem er á landinu og váá, suddalegur kraftur! Ég var í 3. gír og gafd honum inn og hann byrjaði að spóla og afturendinn rann til hliðar hehe bara gaman! Ef bíllinn sem er á landinu hefði ekki lent í svona stóru tjóni þá hefði ég keypt hann. Vinur minn var að vinna niðrí Rétt þegar þeir voru að gera við hann og maðurinn sem var að vinna í honum sagði að bara varahlutirnir sem þeir voru b´´unir að kaupa í hann væru komnir uppí 2 milljónir ![]() |
Author: | Kull [ Sun 15. Sep 2002 18:36 ] |
Post subject: | |
Þetta er svakalegar kerrur en ég myndi nú ekki treysta mér í að kaupa hann án þess að hafa soldinn pening milli handanna ef eitthvað bilar eða þarf að skipta um eitthvað. Alpina varahlutir eru svakalega dýrir, t.d. demparar og bremsudiskar og svoleiðis, tala nú ekki um intercooler eða túrbínur. Það er algjör synd að sjá Alpina B10 bílinn sem er til hérna, hann situr núna í stæði rétt hjá skútuvogi með tvö loftlaus dekk og rotnar niður. |
Author: | Djofullinn [ Sun 15. Sep 2002 18:42 ] |
Post subject: | |
Já nákvæmlega, ég hef nú reyndar heyrt að það sé hægt að nota aðra varahluti en frá Alpina í þá sem séu alveg jafn góðir. Já hvað er að fólki! Þetta er einn af 305 svona bílum í heiminum og eini sinnar tegundar á landinu! Þetta er bíll sem ekta BMW áhugamaður á að eiga ag fara almennilega með! ![]() |
Author: | Svezel [ Sun 15. Sep 2002 20:26 ] |
Post subject: | |
Ég held að það hafi nú verið smíðaðir 507 E34 B10 BiTurbo bílar en <a href="http://www.mobile.de/cgi-bin/search.pl?CountOff=7&DataNr=6&DisplayDetail=11111111112855482&DoSearch=1&FormCategory=0&FormColor=%2e%2e%2ebeliebig&FormDate=0&FormDurchmesser=0&FormEZ=%2d&FormKilometer=%2d&FormLand=%2e&FormMake=266&FormModel=&FormPLZ=&FormPower=%2d&FormPrice=100000000%2d124999999&FormSort=0&Page=0&SearchCat=bereich%3dpkw%26sprache%3d1&bereich=pkw&sprache=1&x=40&y=10"> Gerir link </a> http://www.mobile.de/cgi-bin/search.pl? ... &x=40&y=10"> hér </a> er græjan sem ég er að tala um. |
Author: | Svezel [ Sun 15. Sep 2002 20:37 ] |
Post subject: | |
Úps, ég er rétt að byrja að læra á html kódan, afsakið. Bíllinn er hérna |
Author: | Djofullinn [ Sun 15. Sep 2002 20:46 ] |
Post subject: | |
Neibb þeir eru 305 eða 7. Ég athugaði þetta mjög vel þegar ég ætlaði að kaupa þennan sem er á landinu þegar hann var nýinnfluttur. ![]() Ertu að spá í þessu af einhverri alvöru? Ef svo er þá vona ég að það gangi vel því þetta er bara snilldar bílar ![]() |
Author: | Svezel [ Sun 15. Sep 2002 22:58 ] |
Post subject: | |
Tja maður fær allaveganna ekki mikið flottari og öflugri bíl fyrir 2 millur ![]() ![]() |
Author: | Kull [ Tue 17. Sep 2002 00:48 ] |
Post subject: | |
Ég sá Alpina B10 bílinn á ferðinni í dag þannig að einhver hefur pumpað í dekkin og komið honum af stað. Vonandi mun núverandi eigandi laga hann til og koma honum í sæmilegt stand. |
Author: | Gunni [ Tue 17. Sep 2002 01:18 ] |
Post subject: | |
það er mjög gott að heyra, vonum hið besta. svo kemur hann kannski í klúbbinn ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |