Page 1 of 1

Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Sat 14. Dec 2013 02:22
by Jökull94
Sælir.. er að skoða bíl á bílasölu á Akureyri en það er smá problem.

Eini tíminn sem ég hef fram að jólum til að fara norður að skoða/kaupa (ef mér lýst á) er núna um helgina.. ég hinsvegar get ómögulega fundið út úr því hvernig ég næ sambandi við bílasalann á laugardegi.
Eina sem er gefið upp á heimasíðunni hjá bílasalanum er skrifstofu sími, efast um að hann svari í hann á laugardegi.. (á þó eftir að prófa)
Þannig ef einhver væri til í að gera mér mega greiða og rúlla fyrir mig á þessa bílasölu og tékka á bílnúmerinu á bílnum fyrir mig væri það algjör snilld !

Ef einhver er til, sendu mér þá EP og ég læt þig hafa meira info :)

Og einnig.. ef einhver veit hvort það er hægt að láta söluskoða bíl á Akureyri á laugardegi/sunnudegi? (já ég get borgað smá aukalega fyrir helgarþjónustu)

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Sat 14. Dec 2013 19:56
by eythoringi
smá forvitni bara, hvernig bíl er verið að skoða ?

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Mon 16. Dec 2013 00:05
by Jökull94
Náði sambandi við bílasalann.. brunaði norður strax eftir vinnu á lau. og kíkti á bílinn..
Þetta er bíllinn sem ég var að skoða: http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid ... &schpage=1

Leyst ekki nógu vel á hann.

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Mon 16. Dec 2013 10:30
by Jón Ragnar
Gott verð á þessu.

Hvað var að honum?

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Mon 16. Dec 2013 11:19
by Zed III
bargain verð,

en það er svolítið dýrt að reka þetta.

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Fri 20. Dec 2013 11:20
by Bartek
KY-835
Átti hann í 3 ár og 50.xxxkm... motor er keyrður aðeins minna en mælir sýnir!
:thup:

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Tue 24. Dec 2013 17:10
by Angelic0-
hræðilegt að sjá þetta á Style32...

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Tue 24. Dec 2013 18:19
by bErio
Angelic0- wrote:hræðilegt að sjá þetta á Style32...

Væri töff að sjá hann á 20" sem þú átt

Re: Akureyringur sem getur gert mér greiða á laugardegi?

PostPosted: Tue 24. Dec 2013 20:09
by Angelic0-
bErio wrote:
Angelic0- wrote:hræðilegt að sjá þetta á Style32...

Væri töff að sjá hann á 20" sem þú átt


Það þarf að vera til $$$ til að leysa þær úr tolli fyrst ;) en þær eru líka held ég með rangt offset ET24...

Spurning samt því að þetta er sennilega ET20 sem að er undir honum núna...