Page 1 of 1

Bjórsamkoman í Mars, 1 eða 8 Mars?

PostPosted: Fri 24. Jan 2003 15:48
by saemi
Hvað segir fólk, hvort er meiri vilji fyrir , 1 eða 8 Mars?

Þá munum við hittast, spjalla og gralla, chilla og grilla :!:

Sæmi

PostPosted: Mon 27. Jan 2003 09:22
by bebecar
Ég held nú þó ekki nema væri af sögulegum ástæðum ættum við að hafa þetta 1. MARZ :wink:

PostPosted: Mon 27. Jan 2003 10:48
by saemi
Hehheh einmitt... en verum við ekki á láta atkvæðagreiðsluna ráða?...

Sæmi

PostPosted: Tue 28. Jan 2003 00:35
by Gunni
jú er það ekki réttast. hvað léstu pollinn gilda lengi ??

PostPosted: Tue 28. Jan 2003 00:44
by saemi
Ég lét hana gilda indefinately...

Annars er mér slétt sama hvort þetta verður... En við verðum að fara að ákveða dagsetningu og dagskrá. Ég verð erlendis frá 9-25 næsta mánaðar...!

PostPosted: Tue 28. Jan 2003 01:15
by rutur325i
Ef þú ert að fara að fljúga, eru þá ekki einhverjar reglugerðir um að sötra ekki öl daginn fyrir flugtak :)

PostPosted: Tue 28. Jan 2003 01:18
by rutur325i
Þegar ég las almennilega það sem þú skrifað,
þá gerði ég mér grein fyrir því að það er ennþá janúar :oops: en samt væri ég til í að vita um hvernig þessar reglur eru :wink:

PostPosted: Tue 28. Jan 2003 02:25
by saemi
Hehe, já þannig.. jújú það er sko nóg af reglugerðum :?

Reglugerð JAR sem er í gildi á Íslandi segir að þú megir ekki drekka 8 tímum fyrir mætingu í flug (og heldur ekki vera fullur, þannig að þú mátt ekki vera pissed alveg þangað til 8 tímum fyrir flug og mæta svo rallhálfur í flugið).

Hinsvegar segir flugrekstrarhandbók Flugleiða að þú megir ekki drekka áfengi 18 tímum fyrir flug, þannig að það er það sem ég þarf að fara eftir.

Svo er annað mál að ég fer út sem farþegi, svo það gildir ekki fyrir mig í það skiptið ... !

Sæmi

PostPosted: Wed 05. Feb 2003 00:24
by saemi
Jæja.

Nú er síðasti séns að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Það verður ákveðið á næsta Laugardag hvenær samkoman verður.

Svo.. ef þið viljið hafa áhrif á val dags, þá fer hver að verða síðastur!

Sæmi og Gunni.

PostPosted: Wed 05. Feb 2003 00:30
by Raggi M5
Var búið að finna einhvern þægilegan stað????

PostPosted: Wed 05. Feb 2003 01:14
by saemi
Það er ákveðið húsnæði í sigtinu. Einkahús. En það á eftir að negla það niður 100%

Ef það klikkar þá getum við alltaf endað þetta á einhverjum stað (þar sem ölkelduvatn kryddað humlum er selt og boðið er upp á myndsnældu afspilunar græjur). Það gætum við mætt snemma og horft á bílaskemmtilegheit og spjallað osfrvs.

En eins og áður sagði er markmiðið í augnablikinu að hafa þetta á prívat stað þar sem við mætum með okkar eigin veigar og höfum þetta eftir eigin höfði.

Við fundum um þetta á Laugardaginn næsta (8 feb).

Sæmi

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 11:18
by saemi
Það er búið að ákveða 8 Mars á bjórkvöldið.

Meira um þetta undir samkomur.

Sæmi