Page 1 of 1

Stolnir hlutir!

PostPosted: Tue 09. Oct 2012 15:51
by Axel Jóhann
Nokkrum hlutum var stolið úr bíl félaga míns, Daytona violet RHD M3 bílnum,

Þetta eru Mtech hliðarlistarnir og svo var kassi með nýjum stangarlegum og ARP boltum á gólfinu farþegamegin sem var tekið.


Ef einhver sér þessa hluti til sölu eða veit um einhvern sem var að "eignast" svona þá má endilega láta mig vita.

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Tue 09. Oct 2012 16:40
by gunnar
Shit, ég sem var að fara auglýsa Mtech hurðarlistana mína til sölu sem ég keypti á Schmiedmann fyrir Coupeinn fyrir einhverjum mánuðum síðan. Keypti heilt sett en notaði bara einn. :lol:

Leiðinlegt að heyra þetta samt.

Ef hann finnur ekkert þessa lista þá get ég selt honum úr kittinu sem ég á.

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Tue 09. Oct 2012 19:45
by ömmudriver
Hvað er að fokking frétt með þennan aumingjalýð sem getur ekki látið annarra manna eigur í friði :burn:

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Wed 10. Oct 2012 00:48
by íbbi_
er það bara ég, eða eru búnir að vera hverfa furðulega margir hlutir úr akkurat E36, finnst ég stanslaust vera sjá eða heyra af tilfellum þar sem það er verið að stela m stuðurum, felgum, varahlutum og flr

þetta er nú ekki það útbreyddur hópur, það er einhver sem þekkir til þessara bíla og hverjir eiga hvað

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Wed 10. Oct 2012 08:45
by Aron Fridrik
Hvað ætlar einhver að gera við legusett úr E36 M3 ?

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Wed 10. Oct 2012 09:46
by IvanAnders
íbbi_ wrote:er það bara ég, eða eru búnir að vera hverfa furðulega margir hlutir úr akkurat E36, finnst ég stanslaust vera sjá eða heyra af tilfellum þar sem það er verið að stela m stuðurum, felgum, varahlutum og flr

þetta er nú ekki það útbreyddur hópur, það er einhver sem þekkir til þessara bíla og hverjir eiga hvað


Bingo!

Það er einhver aðili með "budget" project í gangi!

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Wed 10. Oct 2012 10:52
by Axel Jóhann
BTW þá vantar ennþá á hann Mtech frammstuðarann sem var stolið af honum í vor!

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Mon 15. Oct 2012 12:44
by Axel Jóhann
Það var að bætast við þetta Sunflower OEM M3 felgurnar á nýjum dekkjum! :argh:

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Mon 15. Oct 2012 12:47
by Geir-H
Hvað er að frétta? Hvað ætlar fólk að gera við þetta? Ekki eins og þessar felgur séu mjög algengar

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Mon 15. Oct 2012 13:17
by íbbi_
ég verð að viðurkenna að það læðist að mér viss grunur, án þess að ég hafi neitt raunverulega fyrir mér hvað það varðar. en þú getur samt prufað að heyra í mér axel

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Mon 15. Oct 2012 17:50
by Aron123
hvað er í gangi.. stendur bíllinn bara úti eða ?

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Mon 15. Oct 2012 19:39
by Djofullinn
Axel Jóhann wrote:Það var að bætast við þetta Sunflower OEM M3 felgurnar á nýjum dekkjum! :argh:

Var hann ekki með þjófaboltum?
Voru minnir mig þjófaboltar þegar ég átti hann

Það þarf bara að fara að setja myndavélar inní þennan bíl, þar er stolið svo mikið af honum!

Aron123 wrote:hvað er í gangi.. stendur bíllinn bara úti eða ?

Standa ekki 90% af bílum bara úti? :)


En ég mæli með að Gunni sendi myndir af felgunum á öll flutningsfyrirtækin þar sem það er enginn að fara að rúlla á þessu hérna heima, er nokkuð viss um að það séu bara til þessi 2 sett á landinu sem ég kom með heim

Re: Stolnir hlutir!

PostPosted: Mon 15. Oct 2012 19:46
by srr
Varðandi felgurnar,,,,,þá myndi ég skella inn auglýsingu á bland og óska eftir svona felgum,,,,s.s. til kaups.
Þjófurinn yrði frekar fús til að senda skilaboð heldur en að setja inn sína eigin auglýsingu.

Bara uppástunga, ég rændi þessu ekki :|