Page 1 of 2

318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 20:40
by Bennzi
Ég var að hugsa hvort vanir bmw eigendur gætu sagt mér hvort eru sniðugari bílar,
eyðslumunur,
hversu mikill munur upp á snerpu
og bara hvor er skemtilegri

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 21:48
by sosupabbi
320 er lygilega sprækur beinskiptur, kom mér mjög á óvart, 318 er hinsvegar ekki svo sprækur, held að eyðslumunurinn sé ekki svo mikill og m50 er mjög solid vél. 320 fyrir mig allvega.

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 22:08
by Bennzi
sosupabbi wrote:320 er lygilega sprækur beinskiptur, kom mér mjög á óvart, 318 er hinsvegar ekki svo sprækur, held að eyðslumunurinn sé ekki svo mikill og m50 er mjög solid vél. 320 fyrir mig allvega.


en meina 320 er línu sexa þannig ég hugsaði að hann væri að eyða drjúgt,veistu hvað hann fer með mikið á 100 km ?

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 22:13
by ValliB
Átti 320i með m52 vélinni. Hann var alveg sprækur þannig, fínasta tog á flestum rpms miðað við 318 allavega.

Ekki það mikill munur á eyðslu að ég myndi fara í 318..

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 22:18
by íbbi_
það eitt að hafa hljóð úr m50/52 í stað 4cyl gerir hrikalega mikið fyrir bílinn

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 22:24
by 98.OKT
Hef átt bæði 318 og 320 og get ekki annað sagt en að ég mundi taka 320 framyfir sama hvað maður miðar við. Þeir voru báðir beinskiptir og það munaði ekki nema ca 1-2 lítrum á eyðslu per 100.km. 320 bíllinn var í ca 11-12 hjá mér.

Það er ágætis kraftur í 320 bílnum og hægt að fá mjög flott vélarhljóð úr þeim. 318 bíllinn var aftur á móti alveg loppinn og ekkert hægt að leika sér á honum.

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 22:27
by Bennzi
98.OKT wrote:Hef átt bæði 318 og 320 og get ekki annað sagt en að ég mundi taka 320 framyfir sama hvað maður miðar við. Þeir voru báðir beinskiptir og það munaði ekki nema ca 1-2 lítrum á eyðslu per 100.km. 320 bíllinn var í ca 11-12 hjá mér.

Það er ágætis kraftur í 320 bílnum og hægt að fá mjög flott vélarhljóð úr þeim. 318 bíllinn var aftur á móti alveg loppinn og ekkert hægt að leika sér á honum.


blandað ? eða innanbæjar

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 22:57
by 98.OKT
Innanbæjar Reykjavíkurakstur, ég var samt alltaf með frekar þungan bensínfót og var mikið að drifta á hringtorgum á 320 bílnum :wink:

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 23:24
by Axel Jóhann
E34 touring hjá mér, 525 er að fara með 11,5 innanbæjar.

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Thu 30. Aug 2012 23:29
by srr
328 frekar en bæði 318 og 320.

328 hjá mér er að eyða 7-8 í langkeyrslu og um 9-10 innanbæjar :thup:

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Fri 31. Aug 2012 06:10
by ömmudriver
srr wrote:328 frekar en bæði 318 og 320.

328 hjá mér er að eyða 7-8 í langkeyrslu og um 9-10 innanbæjar :thup:



Þú keyrir líka eins og gömull kerling með egg í skottinu :alien:

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Fri 31. Aug 2012 12:44
by íbbi_
520 bíllinn hjá mér getur auðveldlega hangið í undir 9l innanbæjar. en er tæpum 11l í alveg non eco driving

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Fri 31. Aug 2012 15:12
by Stefan325i
Ég átti e46 reyndar 320i beinskiptur og fanst mér hann mjög fínn.
um 11 innanbæjar og milli 7 og 8 á langkeyrlsu en ég keyri líka eins og kelling með egg í skottinu.

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Fri 31. Aug 2012 15:47
by Bennzi
en hvernig er það með rafmagnið í e36 er það ekki oft með leiðindi hef heyrt þa'

Re: 318 vs 320 e36

PostPosted: Fri 31. Aug 2012 15:48
by Bandit79
Er með 320i Touring, M52 og beinskiptur með 4.44 drifi :lol:

Eyðslan liggur í 7.7 - 9.5

Hef átt E36 318 2 x E36 320 og 1 x E34 520

6cyl er winner :)