bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 735i - I-Drive skjárinn dettur út https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=57150 |
Page 1 of 1 |
Author: | binni [ Sat 23. Jun 2012 11:28 ] |
Post subject: | BMW 735i - I-Drive skjárinn dettur út |
Sælir drengir Ég er í vandræðum með I-Drive skjáinn í sjöunni hjá mér. Hann datt út í vetur og hefur ekki komið inn síðan. Hann virkaði fínt þar á undan. Það heyrist í útvarpinu og miðstöðin virkar, ásamt bakkskynjurum og því sem ætti að sjást í I-Drive-inu. En skjárinn eins og segir dauður og hnappurinn óvirkur. Samkvæmt fyrri eiganda þá gerðist þetta líka hjá honum, sá lét Hemma í bogl kíkja á hann og hann kom honum í gang með því að skipta ú öryggi os spreyja contact cleaner í plöggið og skjárinn kom inn. Nú spyr ég ykkur kæru félagar, hvaða plögg er þetta sem ég ætti að skoða, eru búin að renna yfir öryggin, öll heil. Er út á landi og renni því ekki í bogl eða eðalbíla eins og ég myndi gera. kv Binni |
Author: | Angelic0- [ Sat 23. Jun 2012 14:00 ] |
Post subject: | Re: BMW 735i - I-Drive skjárinn dettur út |
I smell CanBus problems.... Þetta er VAFALAUST ekki ódýr viðgerð ![]() |
Author: | slapi [ Sat 23. Jun 2012 16:37 ] |
Post subject: | Re: BMW 735i - I-Drive skjárinn dettur út |
Angelic0- wrote: I smell CanBus problems.... Þetta er VAFALAUST ekki ódýr viðgerð ![]() Nei?? Það sem stýrir myndinni er M-ASK (útvarpið, ef hann er með VM(video module) þá eru meiri líkur á að skjárinn detti út í MOST bilun) ef einhverjar truflanir eru á MOST (ljósleiðari) getur það leitt til þess að skjárinn dettur út eða frís eða eitthvað álíka. MOST er hringtenging þannig að ef eitthvað box er með vandræði þá verður það til þess valdandi að öll boxin á hringnum hætta að getað skilað sýnum boðum á endastöðin sem er M-ASK. Skoða þarf því þegar þetta gerist hvort ljósið sé að skila sér alla leið. Betra að fá bara hæfa menn í að laga þetta. |
Author: | binni [ Sat 23. Jun 2012 21:19 ] |
Post subject: | Re: BMW 735i - I-Drive skjárinn dettur út |
það var einn að segja mér að taka mínusinn af geyminum og leyfa honum að vera svoleiðis yfir nótt og hlaða geymin á meðan. Hann datt út hjá mér í frosthörkunum í vetur, geymirinn var þá drulluslappur. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |