Page 1 of 2

BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 15:17
by bErio
BL mun kynni nýja BMW F20 ásamt F30 næstkomandi Laugardag (28.4 )
Auk þess verða aðrir nýlegir BMW bílar í salnum.
Endilega fá fólk til að kíkja á milli 12-16.

Re: BL kynnir F20 & F30

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 16:58
by MR.BOOM
Eru þeir komnir með Volvo ?

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 16:59
by bErio
F20 er nyji ásinn

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 22:22
by Atli93
er verið að gefa eithvað frítt? (puslur og gos?) :santa:

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 18:08
by jens
BL er með 2 F30 bíla, Luxury og Sport. Ég skoðaði þessa bíla áðan og verð að segja að ég gersamlega kol féll fyrir þessum bílum og þá sérstaklega fyrir Sport útgáfunni. Báðir bílarnir eru 320d Twin Turbo og er eyðslan 4.5 í blönduðum akstri sem er fáránlega góðar tölur á 184 hp bíl, heyrði í mótornum og er hann svona týpískur dísil en alls ekki hávær. Annað sem vert er að skoða er staðsetning mótors og hvað framhjólastell er framarlega, þetta hlítur að gefa bílnum skemmtilegan karakter og jafna þyngdardreyfingu bílsins.

Grunnverð er í kringum 6.6 milljónir en eins og Sport útgáfan er búin hjá þeim inn á gólfi er verðmiðinn rúmar 9.1 milljón.
Æðislegir bílar sem er fyllilega arftaki E30 bílanna ( F30 ) :mrgreen: Mæli með að menn fari niður í umboð og skoði þá á morgun.

Image

Image

Image

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 19:20
by Giz
jens wrote:BL er með 2 F30 bíla, Luxury og Sport. Ég skoðaði þessa bíla áðan og verð að segja að ég gersamlega kol féll fyrir þessum bílum og þá sérstaklega fyrir Sport útgáfunni. Báðir bílarnir eru 320d Twin Turbo og er eyðslan 4.5 í blönduðum akstri sem er fáránlega góðar tölur á 184 hp bíl, heyrði í mótornum og er hann svona týpískur dísil en alls ekki hávær. Annað sem vert er að skoða er staðsetning mótors og hvað framhjólastell er framarlega, þetta hlítur að gefa bílnum skemmtilegan karakter og jafna þyngdardreyfingu bílsins.

Grunnverð er í kringum 6.6 milljónir en eins og Sport útgáfan er búin hjá þeim inn á gólfi er verðmiðinn rúmar 9.1 milljón.
Æðislegir bílar sem er fyllilega arftaki E30 bílanna ( F30 ) :mrgreen: Mæli með að menn fari niður í umboð og skoði þá á morgun.


Ekki til að vera leiðinlegi gaurinn, en 320d er ekki twin turbo. Mig minnir að eina 4 cyl díselvél BMW til þessa með twin turbo er sú sem var í 123d. Alpina notaði hana í e9x d3 bílana frá sér sem voru algert æði. BMW vildi ekki nota þá vél í 3 seríuna þar sem hún var talin, réttilega, taka of mikið, eða allt frá 325d sem þá var 6 cyl 3.0 vél.

En hinsvegar eru þessar vélar í dag orðnar twin scroll, eða twin power eins og þeir kalla þetta. Einungins ein túrbína engu að síður. Þetta twin scroll dæmi kom minnir mig fyrst í n55 sem single turbo twin scroll, en n54 135i/335i var twin turbo áður. Sama hestaflatala engu að síður.

Bara til að vera soldið "pedantic" eða a*al :)

En þessir bílar svínvirka í keyrslu, en mér finnast þeir bara afskaplega óspennandi tilsýndar. Svo ekki sé minnst á F20...

:santa:

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 20:33
by jens
Allt í lagi að vera leiðilegi gaurinn ef það er til að leiðrétta mann. Þetta er rétt hjá þér þegar ég skoða þetta í bæklingnum, mótorinn er það sem þeir kalla BMW TwinPower og að það stendur á mótornum og sölumaðurinn seldi mér það að þessir bílar væru með tvær túrbínum. Ég keypti það umhugsunarlaust og fleiri sem voru að bogra yfir mótornum. Samt sem áður geðveikur bíll og er mun flottari í einum á móti einum.

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 23:41
by Danni
Spá í að reyna að mæta og sá F30 með eigin augum, en þetta er að mínu mati flottasti þristurinn hingað til!

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 00:41
by bErio
Hann er sjuuuukur

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 00:57
by íbbi_
ánægður með f30, flottur í framan

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 11:22
by Schulii
Myndirnar lofa rosalega góðu! Líst mjög mjög vel á hann!!!

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 12:41
by ppp
jens wrote:Annað sem vert er að skoða er staðsetning mótors og hvað framhjólastell er framarlega, þetta hlítur að gefa bílnum skemmtilegan karakter og jafna þyngdardreyfingu bílsins.


Tja, E46 og E90 eru báðir með framhjólin svona framarlega.

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 15:45
by Einarsss
Kíkti við og verð að segja að ég er verulega hrifinn af nýja þristinum og svo sem öllum hinum gerðunum sem var þarna til sýnis! Kom á óvart hvað X3 er orðinn stór :)

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 17:04
by Danni
Kíkti þarna og skoðaði alla bimmana vel. Bara flottir. Gæti alveg ýmindað mér að kaupa einn svona F30 eftir 15 ár :lol:

Fann líka flottasta fídus ever í BMW:

Re: BL kynnir BMW F20 & F30

PostPosted: Sat 28. Apr 2012 17:07
by srr
Danni wrote:Kíkti þarna og skoðaði alla bimmana vel. Bara flottir. Gæti alveg ýmindað mér að kaupa einn svona F30 eftir 15 ár :lol:

Fann líka flottasta fídus ever í BMW:

Þetta er mega töff 8)