Page 1 of 1

Hvar er LJ391 niðurkominn

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 13:38
by hjaltib
Langar að vita hvar LJ 391 er niðurkominn fletti honum upp á us.is og þá kom úr umferð þýðir það bara að númerin er innlögð? Bara forvitnast hvort eigandinn sé hérna á spjallinu minnir að hann hafi verið seldur austur á Egilsstaði eða þar í kring.

Skráningarnúmer: LJ391
Fastanúmer: LJ391
Verksmiðjunúmer: WBAHD61070BK31312
Tegund: BMW
Undirtegund: 525I
Litur: Hvítur
Fyrst skráður: 29.10.1991
Staða: Úr umferð
Næsta aðalskoðun: 01.01.2011
C02 losun (gr/km): Ekki skráð
Eiginþyngd (kg): 1515

Image

Kveðja Hjalti

Re: Hvar er LJ391 niðurkominn

PostPosted: Fri 13. Jan 2012 19:20
by Danni
Eigandinn er fæddur 1991 og býr á Raufarhöfn. Hann er búinn að eiga bílinn síðan í febrúar 2010. Hann hefur lagt númerin inn þrisvar síðan hann fékk hann, síðast í mars 2011 en þá voru númerin innlögð í Hafnarfirði. Hann fór seinast í skoðun í desember 2010 og var þá sett út á 6 hluti, þar af styrkleikamissir sem þýðir oftast slæmt ryð. Þá var hann keyrður 395þús km.

Þetta er það sem ökutækjaskrá segir mér að minnsta kosti :)

Re: Hvar er LJ391 niðurkominn

PostPosted: Sun 15. Jan 2012 12:52
by Ingsie
Ef mér skjátlast ekki þá er mótorinn úr þessum bíl í OS179 vínrauður E30 sem Arnór var að selja :)
Image

Ég og kallinn fengum þennan bíl í fyrra, rifum mótorinn upp úr og settum í E30, skelin er í hafnarfirði og það á að færa allt úr öðrum E34 og setja í þennan skillst mér =) Þannig hann sést kannski á götunni aftur einn daginn :mrgreen:

Re: Hvar er LJ391 niðurkominn

PostPosted: Mon 16. Jan 2012 00:18
by Ásii
Ingsie wrote:Ef mér skjátlast ekki þá er mótorinn úr þessum bíl í OS179 vínrauður E30 sem Arnór var að selja :)
Image

Ég og kallinn fengum þennan bíl í fyrra, rifum mótorinn upp úr og settum í E30, skelin er í hafnarfirði og það á að færa allt úr öðrum E34 og setja í þennan skillst mér =) Þannig hann sést kannski á götunni aftur einn daginn :mrgreen:


þetta passar alveg, ég seldi ykkur bílinn í fyrra :wink: