Page 1 of 2

Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 13:48
by Alpina
Hverig er það,,

Þar sem margir eru orðnir góðir með linsuna ,, og slatti af BMW bílum er til hérlendis, er áhugi að BMW eigendur spjallborðsins
búi til dagatal með ÍSLENSKUM BMW bílum,, :idea: :?: :?:

menn byrja á að tilnefna einhvern ákveðinn bíl,, kannski fleiri en eina mynd t.d
því fleiri bílar því betra.. svo færi fram kosning á þá bíla sem flestar tilnefningar hljóta

um er að ræða ALLA BMW flóruna ...




til gamans má benda á að ég held 3 E34 ÍSLENSKIR BMW voru kosnir á 2011 E34 dagatal bimmerforums,,,,,,

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 16:23
by Emil Örn
Líst mjög vel á þetta. Gæti verið mjög töff.

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 19:12
by jens
Þetta er klárlega frábær hugmynd Sveinbjörn :thup:

Svo er bara hvernig útfærum við þetta, setja menn sjálfir inn bíla ? Helst að menn eigi sjálfir bestu myndirnar af bílunum sínum. Svo bara að setja upp kosningu.

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 19:59
by jon mar
Alveg haugur af flottum bílum hérna heima, ég væri alveg til í eitt dagatal með flottum íslenskum bmw bílum :D

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 20:44
by Emil Örn
Samt frekar seint að koma með þetta ef þetta á að vera 2012. :roll:


Nema einhver taki sig til og búi til mjög sniðugt og fljótlegt kosninga-og innsendinakerfi og svo fjármagni BMWKraftur í framhaldi af því prentun á dagatölum.

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 20:48
by ppp
Ég efast um að einhverjir muni gráta þó að það verði eitthvað smá liðið af árinu.

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 21:01
by Alpina
Emil Örn wrote:Samt frekar seint að koma með þetta ef þetta á að vera 2012. :roll:


Nema einhver taki sig til og búi til mjög sniðugt og fljótlegt kosninga-og innsendinakerfi og svo fjármagni BMWKraftur í framhaldi af því prentun á dagatölum.


Það er rétt....................... en er einhver búinn að taka sig til og varpa þessu fram áður,, :?

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Thu 15. Dec 2011 23:19
by BjarkiHS
En að byrja á "Bíll mánaðarins" í janúar og gefa svo út dagatal 2013 með bílunum frá 2012

Mætti prenta í annari viku desember og reglurnar væru að sami bíll gæti ekki unnið 2 mánuði.
Ég væri klárlega til í að borga fyrir dagatal til að hægt væri að borga fyrir alvöru ljósmyndun og eftirvinnslu.

Ekkert mál að menn tækju sjálfir myndir til að senda í tilnefningar. En möst að hafa "fresh" myndir í dagatali

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 00:26
by Emil Örn
Góð hugmynd. Safna í þetta, bíll mánaðarins fær photoshoot, 3-4 myndum póstað á netið, og svo alltaf 3-4 settar í dagatal. 1 stór og 2-3 litlar, kannski annað sjónarhorn, innrétting og svo vélarsalur/felgur/detail closeup.

Ég gæti tekið einhverjar myndir. http://www.flickr.com/photos/emilorn/

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 00:27
by Alpina
BjarkiHS wrote:En að byrja á "Bíll mánaðarins" í janúar og gefa svo út dagatal 2013 með bílunum frá 2012

Mætti prenta í annari viku desember og reglurnar væru að sami bíll gæti ekki unnið 2 mánuði.
Ég væri klárlega til í að borga fyrir dagatal til að hægt væri að borga fyrir alvöru ljósmyndun og eftirvinnslu.

Ekkert mál að menn tækju sjálfir myndir til að senda í tilnefningar. En möst að hafa "fresh" myndir í dagatali


Alveg þrusu tillaga

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 00:41
by jens
Flott tillaga en eins og bíll mánaðarins var gerður útheimti það endalausa vinnu og spurning hver vill taka það að sér. Þessir strákar eins og t.d Ingi eiga mikið hól skilið fyrir bíll mánaðarins :thup:

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 04:09
by SteiniDJ
Ég er tilbúinn til að leggja þann tíma sem ég get í að koma upp bíl mánaðarins aftur. Það væri ekki óvitlaust ef einhver hópur kraftsmanna gæti skipt nokkrum mánuðum með sér!

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 10:24
by HAMAR
Pant vera desemberbíllinn :santa:

Image

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 12:38
by BjarkiHS
jens wrote:Flott tillaga en eins og bíll mánaðarins var gerður útheimti það endalausa vinnu og spurning hver vill taka það að sér. Þessir strákar eins og t.d Ingi eiga mikið hól skilið fyrir bíll mánaðarins :thup:


Með video og svaka grein. :thup:

Það þarf ekki að vera svona mikið, bara lítil grein (jafnvel viðtal við eiganda) og myndir.
Bara passa að birta ekki myndirnar sem verða í dagatalinu þar sem þar eiga að vera flottustu myndirnar :)

Re: Íslenskt BMW dagatal

PostPosted: Fri 16. Dec 2011 13:31
by Jón Ragnar
Viljið þið ekki taka þetta að ykkur? BjarkiHS og fleiri? :thup: