bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW í Þýskalandi https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=51329 |
Page 1 of 1 |
Author: | HaffiG [ Sat 28. May 2011 03:08 ] |
Post subject: | BMW í Þýskalandi |
Hvaða síður eru bestar uppá að finna BMW í Þýskalandi, fyrir utan mobile.de ? |
Author: | Dr. Stock [ Sat 28. May 2011 08:56 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
Þú finnur einnig bíla á: http://www.autoscout24.de/ |
Author: | Eyberg [ Sat 28. May 2011 10:13 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
Getið þið sagt mér hvað það kostar sirka að taka bíl frá Þýskalandi? |
Author: | HAMAR [ Sat 28. May 2011 13:59 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
Bílverð x2 það er nokkuð nálægt lokatölunni. |
Author: | Solid [ Sat 28. May 2011 14:09 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/ |
Author: | urban [ Sat 28. May 2011 14:14 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
Solid wrote: http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/ ekkert að marka þessa reiknivél lengur. búið að snarbreyta reglunum í kringum þetta |
Author: | JOGA [ Sat 28. May 2011 14:49 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
Ef það er verið að spá í innflutningi á gömlum bílum í dag þá er það þyngdin sem skiptir máli. Þegar Co2 losun liggur ekki fyrir er þyngd bílsins notuð til að ákvarða Co2 gildi sem aftur er notað til útreiknings á vörugjöldum. E30 gæti þannig farið í lægri vörugjaldaflokk en E36 eða E34 þó svo að það sé 2500 vél í þeim öllum. Quote: Þegar ekki er unnt að leggja fram gögn um skráða losun koltvísýrings (CO2) viðkomandi ökutækis skal losun ökutækis á hvern ekinn kílómetra ákvörðuð sem 0,12 grömm á hvert kíló skráðrar eigin þyngdar ökutækisins að viðbættum 50 grömmum af koltvísýringi. Vörugjöld sem eru í gildi á þessu ári eru: Quote: Gjaldflokkar skv. 3. gr. laganna um vörugjald af ökutækjum o.fl. verða þessir: M0 0% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 0-80 g/km M1 10% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 81-100 g/km M2 15% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 101-120 g/km M3 20% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 121-140 g/km M4 25% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 141-160 g/km M5 35% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 161-180 g/km M6 36% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 181-200 g/km M7 44% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 201-225 g/km M8 48% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) 226-250 g/km M9 52% Fólksbifreiðar o.fl. skráð koltvísýringslosun (CO2) yfir 250 g/km => 1400kg bíll er með reiknað Co2 upp á 218g/km og ber þá 44% vörugjöld á þessu ári. => 1200kg bíll er með reiknað Co2 upp á 194g/km og ber þá 36% Vörugjöld á þessu ári. => 1000kg bíll er með reiknað Co2 upp á 170g/km og ber þá 35% vörugjöld á þessu ári. Edit: E30 325i ber því 36% vörugjöld á þessu ári en E36 325i 44%. Til að ná í 36% tollaflokkinn þarf bíllinn að vera léttari en 1250kg. |
Author: | JOGA [ Sat 28. May 2011 16:59 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
Svo er náttúrulega hægt að flytja inn einn svona: ![]() Færi í 20% flokk þar sem hann er bara 701kg. (Svo framarlega sem Co2 sé ekki skráð. |
Author: | Grétar G. [ Sun 29. May 2011 22:12 ] |
Post subject: | Re: BMW í Þýskalandi |
JOGA wrote: Svo er náttúrulega hægt að flytja inn einn svona: [img]http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/e/e6/Lotus_340R-01.jpg[img] Færi í 20% flokk þar sem hann er bara 701kg. (Svo framarlega sem Co2 sé ekki skráð. Djöfull væri maður til í svona ![]() Hvaða verð erum við að tala um ? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |