bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvar á núna gömlu M5 hans sæma.....þessa gráu...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=5113
Page 1 of 3

Author:  Austmannn [ Mon 22. Mar 2004 17:11 ]
Post subject:  Hvar á núna gömlu M5 hans sæma.....þessa gráu...

Kiddi er búinn að selja hann skillst mér. Var að velta fyrir mér hvort einhver hafði séð þennan bíl nýlega, hvert hann var seldur og hver var heppni kaupandinn???

Author:  Benzari [ Mon 22. Mar 2004 17:31 ]
Post subject: 

Þeir fara allir norður þessa dagana. :x , kannski er ég að rugla en minnir að ég hafi lesið það á einhverju spjalli.

Fann þessa skráningu:

http://bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&B ... _ID=216082

Author:  Gunni [ Mon 22. Mar 2004 18:54 ]
Post subject: 

M5 er greinilega góð fjárfesting. Þeir hækka bara en lækka ekki í verði :|

Author:  Alpina [ Mon 22. Mar 2004 19:21 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
M5 er greinilega góð fjárfesting. Þeir hækka bara en lækka ekki í verði :|





((((((((((NAUTA----KÚKUR)))))))))))))))))))

Author:  Megadeth [ Mon 22. Mar 2004 19:21 ]
Post subject: 

bíllinn er núna í hafnarfirði og eigandinn heitir Ívar og þið getið séð bíllinn fyrir utan TB það er verið að gera við hann, sveifarásin lekur og eitthvað fleirra smáhlutir. En ég finn nú bara til með greyinu þar sem eigandinn er nú ekki sá slakasti á bensíngjöfinni hann er nú búinn að eiðileggja 2 eða 3 bíla og vona ég nú eftir að þessi endi ekki eins

Author:  fart [ Mon 22. Mar 2004 19:22 ]
Post subject: 

Alpina..

Ég held að þú sért búinn með Gæsalappa og svigakvótan.. hehehe :lol:

Author:  Gunni [ Mon 22. Mar 2004 20:01 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Gunni wrote:
M5 er greinilega góð fjárfesting. Þeir hækka bara en lækka ekki í verði :|





((((((((((NAUTA----KÚKUR)))))))))))))))))))


Enda var örlítill kaldhæðnistónn í þessu. Ég vísa í upprunalega söluþráðinn eftir að þessi bíll kom til landsins http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 79&start=0 og svo það sem bent var á hér að ofan http://bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&B ... _ID=216082

Author:  Kull [ Mon 22. Mar 2004 20:13 ]
Post subject: 

Held nú að það sé búið að gera töluvert fyrir bílinn, t.d. skipta um kúplingu og svoleiðis sem er ekki ódýrt. Kannski ekkert óeðlilegt að hann hækki aðeins við það. Ásett verð er líka bara ásett verð :)

Author:  Gunni [ Mon 22. Mar 2004 20:16 ]
Post subject: 

Síðast þegar ég vissi var viðhald bifreiða ekki fært til hækkunar á stofnverði :idea:

Það er samt alveg merkilegt hvað sumir sem eru alltaf síkvabbandi yfir því að hinir og þessir bílar séu of dýrir gúdderi svo alltaf yfirverð á einstaka bílum ??

Author:  Alpina [ Mon 22. Mar 2004 20:23 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
Síðast þegar ég vissi var viðhald bifreiða ekki fært til hækkunar á stofnverði :idea:


Gæti ekki verið meiri sammála

Author:  fart [ Mon 22. Mar 2004 20:33 ]
Post subject: 

blablablabla......

hverjum er ekki sama um þetta verð.. ef hann vill selja á þessu verði þá það, þá er bara spurning um hvort einhver vill borga það... of EF EINHVER VILL BORGA ÞAÐ VERÐ ÞÁ ER ÞAÐ "RÉTTA" VERÐIÐ Á BÍLNUM.

P.U.N.K.T.U.R.

Author:  Gunni [ Mon 22. Mar 2004 20:36 ]
Post subject: 

fart wrote:
blablablabla......

hverjum er ekki sama um þetta verð.. ef hann vill selja á þessu verði þá það, þá er bara spurning um hvort einhver vill borga það... of EF EINHVER VILL BORGA ÞAÐ VERÐ ÞÁ ER ÞAÐ "RÉTTA" VERÐIÐ Á BÍLNUM.

P.U.N.K.T.U.R.


Vonandi muna þetta þá allir þegar þeir fara að skæla næst!

Author:  bebecar [ Mon 22. Mar 2004 21:07 ]
Post subject: 

Pffffffffffff......


Ég nennti nú ekki að gá hvað ásett verð er á bílasölunni... en þegar menn eru að bjóða hesta, vélsleða og allavega vitleysu uppí þá er ágætt að hafa smá svigrúm ef annað er ekki tekið fram.

Svo finnst mér nú viðhald skipta heilmiklu máli og ég veit ekki betur en að það hafi mikil áhrif á verð á bílum, t.d. seljast bílar nýkomnir úr Inspection og með full stimplaða bók á hærra verði en aðrir!

Sumar framkvæmdir eru líka þess eðlis að þær kosta stórfé... þá finnst mér alls ekki óeðliegt að bíllinn sé hærra verðlagður en fyrir þær!

En eins og áður segir þá er rétta verðið það verð sem aðilar ná samkomulagi um, stundum er það bargain fyrir kaupandann - stundum græðir seljandinn. En lang oftast eru báðir sáttir.

Author:  fart [ Mon 22. Mar 2004 21:29 ]
Post subject: 

ég hefði einhvernvegin haldið að nýjir varahlutir og viðgerðir vegi þyngra í verði á gömlum bíl, sbr að lítið ekinn bíll er meira viðri en mikið ekinn.

Author:  saemi [ Mon 22. Mar 2004 21:36 ]
Post subject: 

Ég verð nú að segja að ég myndi borga meira fyrir M5 sem er nýbúið að skipta um kúplingu í, eða eitthvað þess háttar sem er eðlilegt að telja til tekna!

Finnst það alls ekki óeðlilegt.

En viðmiðunarverð er eitthvað sem er ekki til á gömlum bílum að mínu mati. Það er bara gangverð þar á bæ. Það sem kaupandinn borgar :?

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/