Page 1 of 1

Áhugaverðar pælingar

PostPosted: Sat 20. Mar 2004 20:44
by Bjarkih

PostPosted: Sun 21. Mar 2004 14:45
by Bimmarinn
Sorglegar pælingar :argh:

PostPosted: Sun 21. Mar 2004 14:49
by Bjarkih
Ég er nú að mörgu leiti sammála þeim. Sérstaklega út af mælaborðinu, mér fynnst alveg hræðilegt að miðstokkurinn snúi ekki að ökumanni lengur. :evil:

PostPosted: Sun 21. Mar 2004 15:01
by Schulii
Mér finnst mikið af þessum pælingum vera ástæðulaus ótti. Mér skilst að það sama hafa verið uppi á teningnum þegar E-36 og E-34 komu fyrst, þ.e.a.s að áhugamönnum hafi fundist að BMW væri búinn að missa þennan BMW "fíling".

Það er til svo mikið af heitum "stuðningsmönnum" BMW og ég held bara að þeir óttist oft að BMW séu alveg að tapa sér og það sé endanlega búið að rústa aðal áhugamálinu þeirra. Sérstaklega þegar BMW kynnir nýjar línur.

Mér finnst málið vera það að það helst EKKERT óbreytt í þessum heimi þótt maður óski þess oft. BMW AG verða að kynna nýjar línur og breytingar. Þeir eru mjög djarfir finnst mér og eins og ég sagði áðan að ef maður skoðar söguna þeirra myndrænt þá er þetta bara það sem hefur verið að endurtaka sig í gegnum tíðina.

Mér finnst þetta í raun vera gleðitíðindi að sjá þessar djörfu breytingar og nýju línur því það segir mér að þeir séu ekki að missa flugið og virðast ætla að halda sínu striki um ókomna tíð eins og þeir hafa verið að gera síðastliðna áratugi með því að hanna og framleiða fallega, kraftmikla bíla með það að leiðarljósi að skapa umfram allt skemmtilega fjölskylduvæna akstursbíla með gott notagildi.

Ég sé samkeppnisaðila þeirra BMW vera að reyna að viðhalda gömlum hugmyndum og smám saman endurbæta gamlar hannanir útlitlslega og það tel ég vera mistök og líka það sem eigi eftir koma BMW í enn betri stöðu í þeirri hörðu sókn sem þeir hafa verið í undanfarin ár!!!

but thats just my 50 cent...

PostPosted: Sun 21. Mar 2004 15:12
by iar
Bjarkih wrote:Ég er nú að mörgu leiti sammála þeim. Sérstaklega út af mælaborðinu, mér fynnst alveg hræðilegt að miðstokkurinn snúi ekki að ökumanni lengur. :evil:


Ég er sammála því en það á ekki við um sexuna, miðjustokkurinn snýr aðeins að ökumanninum.

PostPosted: Sun 21. Mar 2004 19:17
by bjahja
Ég er algjörlega sammála þér Skúli :!:

PostPosted: Sun 21. Mar 2004 23:23
by Jss
Mér finnst þeir vera á góðri leið, framþróun er af hinu góða. :D