Page 1 of 1

Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Thu 31. Mar 2011 11:25
by Einarsss
Sælir félagar.

Í gær var undirritaður samningur milli BMWkrafts og Bílabúðar Benna.

Benni ætlar að veita okkur góðan afslátt á dekkjum, verslun og verkstæði ásamt því að vera með ýmsa viðburði í samstarfi við okkur eins og til dæmis löngum fimmtudegi, þar sem þeir ætla að bjóða okkur í heimsókn.
Þar verða ýmsar vörur á sértilboði og verður gert betur grein fyrir þeim þegar nær dregur einnig verða grillaðar slöngur og drykkjarföng. Við gerum þetta kvöld að samkomu og endum á hóprúnti. :D


Við fáum eftirfarandi afslætti hjá þeim:

10% afsláttur af vörum í verslun.
15% afsláttur af dekkjum, olíu og síum.
20% afsláttur af vinnu.


Einnig ætla þeir að gera enn betur við okkur í dekkjamálum næstu vikurnar og bjóða okkur dekk á sérkjörum, þar sem ekki er hægt gefa út extra flatan afslátt á öll dekk þá mun ég taka við tölvupósti á robotic hjá simnet.is þar sem meðlimir senda mér hvaða dekkjastærðir þig vantar ásamt tegund ef þú vilt ákveðna og notendanafn á spjallinu. Ég sé svo um að áframsenda þessar beiðnir á Bílabúð Benna og þeir svara þá með verð.
Þannig að lágmarksafsláttur verður 15% og svo verður mismunandi hvaða svigrúm þeir hafa upp á auka afslátt.

Það verða líka sértilboð á ákveðnum vörum í verslun og mun það verða kynnt sérstaklega í sérþræði í hvert sinn.

En að þessu sinni verða mælar og kerti á 20% afslætti út apríl.



_______________________________________________________________________________

Það þarf varla að taka fram að þessi sérkjör eru aðeins í boði fyrir meðlimi kraftsins. Afslátturinn er fljóttur að borga upp þennan 2 þúsund kall sem við rukkum í félagsgjöld og hvet ég alla að gerast meðlimir sem fyrst til að geta nýtt sér fríðindin sem fylgja því að vera fullgildur meðlimur bmwkrafts 8)

Þú getur skráð þig í klúbbinn hér og frekari upplýsingar um fríðindi má nálgast hér

Ef þú skráir þig í klúbbinn og langar að kaupa dekk á þessum flotta díl þá getur þú látið fylgja með póstinum að þú hafir verið að greiða félagsgjöldin.

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Thu 31. Mar 2011 11:28
by rockstone
:thup:

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Thu 31. Mar 2011 12:00
by jens
:thup: frábært framtak hjá stjórn kraftsins.

Flottur samstarfsaðili, hef í gegnum tíðina fengið super þjónustu og verð. Verst að ég keypti ný dekk hjá þeim í fyrra en á frábæru verði.

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Thu 31. Mar 2011 12:27
by IvanAnders
jens wrote::thup: frábært framtak hjá stjórn kraftsins.

Flottur samstarfsaðili, hef í gegnum tíðina fengið super þjónustu og verð. Verst að ég keypti ný dekk hjá þeim í fyrra en á frábæru verði.


Æji, en glatað.....

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Thu 31. Mar 2011 13:39
by oddur11
:thup:

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Thu 31. Mar 2011 14:29
by SteiniDJ
Nice!

Hljómar vel! Er ekki um að gera að fara uppfæra forsíðuna hjá okkur upp úr þessum gleðifréttum? 8)

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Fri 01. Apr 2011 14:16
by Einarsss
endilega senda á mig póst til að fá quote í dekk :D

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Fri 01. Apr 2011 14:18
by kalli*
Var ekki að trúa því hvað ég fékk fljótt svar ! Bara flott. 8)

Re: Samstarf BMWkrafts og Bílabúðar Benna

PostPosted: Fri 01. Apr 2011 19:32
by Einarsss
Einarsss wrote:endilega senda á mig póst til að fá quote í dekk :D



ath ekki PM heldur á e mailið í efasta póstinum