Page 1 of 2

bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 17:26
by herra siggi
veit einhver hvað þetta -nato- er??

ég á bmw 520ia og það er sagt að hann sé einn af nato bilunum.

Re: bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 17:44
by SteiniDJ
NATO er N.Atlantshafsbandalagið og er hernaðarbandalag.

Re: bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 17:46
by srr
Er þetta ekki bara innfluttur bíll í gegnum hermenn upp á velli.

Re: bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 17:51
by Bjössi
bíllinn þinn var fluttur inn vegna NATO fundarins sem var haldinn hérna 2002
og notaður til þess að keyra einhvern höfðingjann um á meðan fundinum stóð

Re: bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 17:55
by srr
Bílnúmer ?

Re: bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 18:07
by Alpina
Þetta er einn af mörgum E39 bílum sem voru fluttir inn vegna aðalfundar NATO .. 2003
og notaðir til að servera fundar og nefndargesti

Re: bmw nato

PostPosted: Wed 02. Mar 2011 18:11
by herra siggi
bílnúmerið er: ty 115

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 11:07
by Axel Jóhann
Til hamingju.




YOU ARE THE CHOSEN ONE!

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 13:43
by HAMAR
Image

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 14:23
by Viggóhelgi
þessir bílar voru sprengjuvarðir og skotvarðir... en í flestum voru plöturnar teknar úr þeim eftir að fundinum lauk



eða er ég að ljúga ? :)

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 14:30
by tinni77
Viggóhelgi wrote:þessir bílar voru sprengjuvarðir og skotvarðir... en í flestum voru plöturnar teknar úr þeim eftir að fundinum lauk



eða er ég að ljúga ? :)


Það er bara ein leið til að finna út úr því, ég býð mig fram til þess

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 14:36
by Viggóhelgi
tinni77 wrote:
Viggóhelgi wrote:þessir bílar voru sprengjuvarðir og skotvarðir... en í flestum voru plöturnar teknar úr þeim eftir að fundinum lauk



eða er ég að ljúga ? :)


Það er bara ein leið til að finna út úr því, ég býð mig fram til þess


sprengja hann upp og skjóta á hann!? ég yrði í raun ekki spenntur fyrir því, ég myndi frekar vilja fá að vita hvar þú fékkst vopnin og sprengiefnið! :)

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 18:16
by Spiderman
Viggóhelgi wrote:þessir bílar voru sprengjuvarðir og skotvarðir... en í flestum voru plöturnar teknar úr þeim eftir að fundinum lauk



eða er ég að ljúga ? :)



Ef ég man rétt þá var bara einn bíll útbúinn þannig og það var 7 línu bíllinn sem Colin Powell var ekið um í. Hinir bílarnir voru flestir basic 5 línu bílar sem voru svo seldir með góðum afslætti hjá B&L eftir fundinn.

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 20:20
by Wolf
Það var bara E38 sem Powell var á, sá bíll var síðan fluttur út aftur. E39 bílarnir voru bara venjulegir.

Ég á nokkrar myndir úr sal B&L frá þessum tíma þ.e maí 2002 ef einhver hefur áhuga...

Re: bmw nato

PostPosted: Thu 03. Mar 2011 20:26
by Mr. Jones
Bara vigta kvikindið, ef hann er 5-6 tonn þá er hann brynvarinn :lol: