bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=49673 |
Page 1 of 3 |
Author: | Svezel [ Tue 22. Feb 2011 09:20 ] |
Post subject: | Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Hefur einhver annar tekið eftir því að tollurinn (eða tollmiðlun póstsins) sé orðinn ansi kræfur við álagningu gjalda við innflutning? Ég er núna búinn að lenda í því tvisvar á c.a. mánuði að reikningurinn sem ég fæ er u.þ.b. tvöfalt hærri en hann á að vera. Svo þegar ég sendi þeim póst með reikningi seljanda og mínum útreikningum þá er minnsta mál að laga þetta í rétta upphæð og mínir útreikningar réttir. Mórallinn í sögunni er sá að skoða vel reikninginn sem þið fáið frá tollinum, maður borgar víst nóg í þetta bákn svo maður sé ekki ofrukkaður líka! Það er minnsta mál að reikna þetta sjálfur skv. tollskránni á https://vefafgreidsla.tollur.is/tollalina/tav/ eða jafnvel með reiknivélinni á http://www.tollur.is/upload/files/calc_ ... 822%29.htm |
Author: | Danni [ Tue 22. Feb 2011 09:55 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Var einmitt að ræða við eina sem sér um að reikna og rukka tolla á vörum sem eru fluttar til landsins gegnum Icelandair Cargo og leystar út hjá þeim. Hún sagði mér að tollurinn fer vel yfir alla útreikninga frá þeim til að passa að allt sé rétt tollað. Ef einhver hlutur er settur í rangan tollflokk með of lág gjöld þá senda þeir rukkun en þeir endugreiða aldrei ef einhver vara er sett í rangan tollflokk með of há gjöld! |
Author: | Zed III [ Tue 22. Feb 2011 10:05 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Ég var að fá hlut í seinustu viku þar sem þeir ákváðu að nota pund í stað dollara við útreikning álagningar. Um að gera að fylgjast með því líka. Man líka eftir því að Bentley manuallinn minn fyrir z3 átti að vera tollaður sem varahlutur en ekki bók á sínum tíma. |
Author: | Thrullerinn [ Tue 22. Feb 2011 10:37 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Er sorglega latur að fara yfir þetta ![]() Thumbs up fyrir ábendinguna á reiknivélina og yfirlitið. |
Author: | gjonsson [ Tue 22. Feb 2011 22:25 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Rólyndis maðurinn ég hef bara einu sinni á ævinni verið svo reiður að ég hafi gert mér sérstaka ferð, hraunað yfir og fokkað á starfsmenn fyrirtækis. Þetta gerðist einmitt þegar tollurinn lék mig grátt. Hvað lærði ég af þessari ferð... 1. Aldrei senda einhvern til að sækja pakka fyrir þig frá útlöndum þegar það þarf að borga eitthvað. 2. Muna að taka allar kvittanir og geyma á góðum stað. 3. Maður er á lélegu tímakaupi við að standa í stappi við tollmiðlun. |
Author: | íbbi_ [ Wed 23. Feb 2011 11:52 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
ótrúlegt að svona reglur standist lög.. að þeir sendi rukkun eftir á ef þeir misreikna í þá áttina, en endurgreiði ekki þeim sem eru látnir borga of mikið.. |
Author: | SteiniDJ [ Wed 23. Feb 2011 13:55 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Er ekki hægt að útfæra sína eigin tollskýrslu þegar pantar vöru og haft hana tilbúna þegar varan kemur til landsins? Getur varla verið svo flókið! |
Author: | saemi [ Wed 23. Feb 2011 14:21 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
SteiniDJ wrote: Er ekki hægt að útfæra sína eigin tollskýrslu þegar pantar vöru og haft hana tilbúna þegar varan kemur til landsins? Getur varla verið svo flókið! jú, þetta er frekar mikið torf. T.d. þarf að setja umbúðir og plast með á innflutningsskýrsluna svo hún sé tekin gild. Jafnvel þó það kosti ekki neitt, þá verður það að vera með á skýrslunni ![]() Þegar þú ert búinn að bíða í svona viku og senda nýja skýrslu inn 2svar sinnum, þá hættir þú bara að nenna þessu og færð e-n til að gera þetta fyrir þig ![]() |
Author: | Zed III [ Thu 24. Feb 2011 08:45 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
saemi wrote: SteiniDJ wrote: Er ekki hægt að útfæra sína eigin tollskýrslu þegar pantar vöru og haft hana tilbúna þegar varan kemur til landsins? Getur varla verið svo flókið! jú, þetta er frekar mikið torf. T.d. þarf að setja umbúðir og plast með á innflutningsskýrsluna svo hún sé tekin gild. Jafnvel þó það kosti ekki neitt, þá verður það að vera með á skýrslunni ![]() Þegar þú ert búinn að bíða í svona viku og senda nýja skýrslu inn 2svar sinnum, þá hættir þú bara að nenna þessu og færð e-n til að gera þetta fyrir þig ![]() Ég reyndi þetta líka einu sinni. Eftir tæp 20 ár í skóla þá játaði ég mig sigraðan af tollskýrslu ![]() Alveg fáránlegt torf. |
Author: | SteiniDJ [ Thu 24. Feb 2011 10:57 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Er þetta ekki eitthvað sem maður verður að prófa? A.m.k. einusinni? Meina, how hard can it be? ![]() |
Author: | Jss [ Thu 24. Feb 2011 23:11 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
SteiniDJ wrote: Er þetta ekki eitthvað sem maður verður að prófa? A.m.k. einusinni? Meina, how hard can it be? ![]() Ekkert svo erfitt, ef maður kann það. ![]() Gerði þetta einhvern tíma fyrir sjálfan mig og gekk svosem upp í fyrstu tilraun en mér fannst ekki taka því miðað við gjaldið sem pósturinn tekur fyrir þetta. |
Author: | srr [ Thu 24. Feb 2011 23:15 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Sammála þessu,,,,ég hef einu sinni skilað inn tollskýrslu sjálfur fyrir vöru sem ég var að kaupa að utan. Þurfti að skila henni niður í tollstjóra á tryggvagötu, svo fara með samþykkta pappíra upp í tollmiðlun á stórhöfða. Það eitt og sér er dýrara í bensínkostnaði en að borga bara póstinum tæpar 3 þúsund kr strax. Amk hef ég ekki nennt að standa í þessu síðan. |
Author: | SteiniDJ [ Fri 25. Feb 2011 00:45 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Er ekki hægt að faxa þetta bara? |
Author: | Bjarki [ Fri 25. Feb 2011 09:22 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
þörf ábending. Ég hringi stundum í tollstjóraembættið og fæ leiðbeiningar, þeir segja manni að hafa samband við fyrirtæki sem gera tollskýrslur en ég neita og fer ekki úr símanum fyrr en ég fæ nákvæma útlistun á því hvernig á að gera þetta. Þetta er hægt því þeir eru að rukka þessi gjöld og verða að upplýsa mann hvernig maður á að borga þetta. Í þessu þjóðfélagi þarf alltaf að láta kné fylgja kviði! Ég vil einnig benda á það að með inngöngu í EU þá falla öll slík gjöld niður og þá þurfa íslensk fyrirtæki að keppa við erlend fyrirtæki og þá geta þeir ekki lengur okrað á okkur. Stundum eru verðin þannig hér á þessu skeri að halda mætti að starfsmenn fyrirtækisins fari með farþegaflugi til að sækja hvern einasta hlut og kaupi hann á verslunarverði erlendis en nýti sér ekki fraktflutninga! |
Author: | Jón Ragnar [ Fri 25. Feb 2011 09:27 ] |
Post subject: | Re: Tollurinn kræfur - fylgist vel með gjöldunum |
Bjarki wrote: þörf ábending. Ég hringi stundum í tollstjóraembættið og fæ leiðbeiningar, þeir segja manni að hafa samband við fyrirtæki sem gera tollskýrslur en ég neita og fer ekki úr símanum fyrr en ég fæ nákvæma útlistun á því hvernig á að gera þetta. Þetta er hægt því þeir eru að rukka þessi gjöld og verða að upplýsa mann hvernig maður á að borga þetta. Í þessu þjóðfélagi þarf alltaf að láta kné fylgja kviði! Ég vil einnig benda á það að með inngöngu í EU þá falla öll slík gjöld niður og þá þurfa íslensk fyrirtæki að keppa við erlend fyrirtæki og þá geta þeir ekki lengur okrað á okkur. Stundum eru verðin þannig hér á þessu skeri að halda mætti að starfsmenn fyrirtækisins fari með farþegaflugi til að sækja hvern einasta hlut og kaupi hann á verslunarverði erlendis en nýti sér ekki fraktflutninga! Þessvegna vill ég EU ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |