bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E60 M5 Ekinn 130.000
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=49634
Page 1 of 5

Author:  Jökull [ Fri 18. Feb 2011 22:14 ]
Post subject:  E60 M5 Ekinn 130.000

Langaði bara að ath hvort einhver hér þekki þessa bíla og geti sagt mér hvort þeir séu viðkvæmir fyrir svona akstri ? (margir hér sem eru á erlendum spjallborðum ;)
Svo veltur þetta allt á viðhaldi aðalega að hugsa þá um SMG, drif og mótor að sjálfsögðu

Author:  SteiniDJ [ Sat 19. Feb 2011 03:02 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Nú veit ég lítið um E60 M5, en hefði haldið að viðhald og sú meðferð sem bíllinn hefur fengið í gegnum árin skipti öllu máli. Vil heldur eiga M5 ekinn 200.000 sem búið er að hugsa vel um heldur en M5 ekinn 50.000 sem búið er að spóla allt það besta úr. Aksturinn er ekki allt!

Ef þú ert að skoða bíl hér heima, farðu þá með hann í Eðalbíla og láttu þá renna yfir hann. Þeir ættu að geta gefið þér hugmynd um ástand hans.

Author:  fart [ Sat 19. Feb 2011 07:25 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Ég myndi einmitt halda það sama.

Fjöldi KM segir eitt, en það hvernig KM eru eknir segir meira.

Myndi taka bíl með fleiri km á mælinum, 100% viðhald og sögu fram yfir lélega sögu, ekkert viðhald og lága KM stöðu.

Mig dauðlangar í svona bíl aftur, er næstum búinn að gleyma hvað það er dýrt að eiga þetta gjaldalega séð (tryggingar og skattar). Það væri algjör draumur að detta niður á vel útilátinn M5 eftir svona 5-6 ár, sem hefur verið notaður sem autobahn krúser af miðaldra bílaáhugamanni ekinn slatta, sem væri svipað anal í viðhaldi og ég var/er. Það góða við high-milage bíla er að þeir tapa verðinu hratt, þrátt fyrir gott útlit og góða sögu :thup:

Author:  Jökull [ Sat 19. Feb 2011 09:54 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Er að hugsa um þennan hér, Er ekki allveg viss hvaða bíll þetta er, AO462-UP019-ON618.....

http://bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=5&cid=260636&sid=172600&schid=a1b1a349-b315-43ce-a92c-bc86b56802dd

Image

Author:  Budapestboy [ Sat 19. Feb 2011 10:40 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Þetta er AO462 eigendasagan virðist vera flott á þessum bíl bara einn eigandi eftir að hann var fluttur inn 2007 Þá ekinn 52190.

Author:  Jökull [ Sat 19. Feb 2011 11:13 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

OK datt í hug að þetta væri hann, datt ekki annað í hug en að það væru svona allavega 5 eigendur að honum hér heima og hann hafi komið nýr hingað og nauðgað í drasl, gott að vita af bara einum eiganda :)

Author:  SteiniDJ [ Sat 19. Feb 2011 13:15 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Aftur, mæli með því að þú farir með hann í Eðalbíla og láti þá taka hann í ástandsskoðun.

Ég sé ekki eftir því að hafa gert það (svo var það líka ódýrara hjá þeim heldur en öðrum skoðunarstöðum! :mrgreen:).

Author:  Jökull [ Sat 19. Feb 2011 15:53 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

OK, Ef þetta fer eitthvað lengra en bara að dreyma þá geri ég það :wink:

Author:  Alpina [ Sat 19. Feb 2011 18:19 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Mönnum ..dreymir varla,.. að þurfa að snara út yfir fimm og hálfa kúlu :wink: :mrgreen:

en þar sem ég átti kost á að njóta þess að hafa aðgang af og til af svona bíl,, fyrir 4 árum , þá tek ég undir með Svenna Fart
hann er sá aðili hérna inni sem átti svona bíl . ásamt nokkrum meðlimum hérna .og eflaust einna lengst og halaði inn flesta km....... og creme de la creme keypti bílinn spánýjann 8)

1) aflið er fáránlegt .. og miklu meira en það .. pullið er einnig gott og í guðsbænum þið þarna S62 týnda herdeildin ekki koma með enn einn tosaarfrasann S85 vs S62 S85 púllar meira punktur og er 100 hrossum aflmeiri,, ENDIR

2) þetta eyðir svo miklu benzíni á gjöfinni að manni blöskrar ,, og rúmlega það ((SL 55 Carlsson er með mun minni eyðslu en S85)) og þetta eyðir miklu innanbæjar ..... be aware

3) Þetta er þungt,, þannig að þótt um góðar bremsur sé að ræða. þá er alltaf miðflótta afl til staðar ef menn eru eitthvað að fara að taka feit twisty run,,

4) allt sem heitir rekstur er i dýrara lagi vs normal E60

5) ef ég væri í þannig álnum að ég gæti .. þá væri hvítur E60 M5 í minni umsjá,,,,,,,,,, MEGA bílar að mínu mati :thup:

6) SMG í þessum bílum er frábært .. þarft aðeins að læra inn á það .. td taka þrýstinginn af gjöfinni milli gíra ,, þá skiptir bíllinn sér silkismooth.. ég er mikill ANTI allskonar gizmo-tækni ógeðs .. en þetta er frábært í þessum bíl

Author:  SteiniDJ [ Sat 19. Feb 2011 18:43 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Alpina wrote:

Þú átt ekkert að vera að pæla í eyðslu á svona ,,, ((high-performance)),,, vél! Vera á 318 ef þú ert í þeim hugsunum!!!

- Alpina

Author:  Alpina [ Sat 19. Feb 2011 18:50 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

SteiniDJ wrote:
Alpina wrote:

2) þetta eyðir svo miklu benzíni á gjöfinni að manni blöskrar ,, og rúmlega það ((SL 55 Carlsson er með mun minni eyðslu en S85)) og þetta eyðir miklu innanbæjar ..... be aware

Þú átt ekkert að vera að pæla í eyðslu á svona ,,, ((high-performance)),,, vél! Vera á 318 ef þú ert í þeim hugsunum!!!

Þetta er akkúrat mergur málsins ... :thup:

Author:  Thrullerinn [ Sat 19. Feb 2011 20:07 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Alpina wrote:
SteiniDJ wrote:
Alpina wrote:

2) þetta eyðir svo miklu benzíni á gjöfinni að manni blöskrar ,, og rúmlega það ((SL 55 Carlsson er með mun minni eyðslu en S85)) og þetta eyðir miklu innanbæjar ..... be aware

Þú átt ekkert að vera að pæla í eyðslu á svona ,,, ((high-performance)),,, vél! Vera á 318 ef þú ert í þeim hugsunum!!!

Þetta er akkúrat mergur málsins ... :thup:

Innréttingin á þessum bíl er svo VIP að hálfa væri nóg. Silfurlitaður bílar eru flatir en með svona innréttingu, össh!

Author:  Jökull [ Sat 19. Feb 2011 22:16 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Skil hvað þú ert að fara Alpina, þetta með reksturinn á bílnum er einmitt það sem hræðir mann,
En þar sem maður er vanur að umgangast og keyra aflmikla bíla t.d S65AMG,CL65AMG,CL63AMG,SLK55,997TURBO,M6,E60M5
Þá gerir maður sér allveg grein fyrir aflinu,bremsum,bensíni en maður þekkir ekki reksturinn í heild á svona bíl.

En þar sem maður hefur nú ekki átt þessa ofangreinda bíla, bara keyrt eða verið með afnot af í 1 dag kannski, var t.d að vinna á S65AMG bílnum í aukavinnu og var hann að eyða 25l-30l á rúntinum og var fljótur með afturdekkin, en dekk og bensín er auðvitað bara hluti af kostaði á rekstri svona bíls.

Þannig að það er bara spurning á maður að leika sér aðeins, hneyksla tengdaforeldrana og líta framhjá þessum kostnaði ??
Eða bara vera safe og sleppa þessu ??

Skemmtileg spurning er það ekki ?? :wink:

Author:  Viggóhelgi [ Sat 19. Feb 2011 22:43 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Ef að þetta er orðið spurning um tengdó ásamt því að þurfa að hugsa um rekstrarkostnaðinn sem byrði á þér.

þá segi ég nei, algjör óþarfi að vera að spenna bogan svo hátt að þú lendir í vandræðum þegar að tryggingar birtast næst í heimabankanum og þegar að eitthvað bilar.

þetta er þrusu skemmtilegur bíll, flottur og skemmtilegur, en ekki stoppa lífið þitt bara til þess að geta rekið 1 stk m5.

það er mikið til sem er skemmtilegt og flott þó svo það sé ekki m5 ! ;)

Author:  slapi [ Sun 20. Feb 2011 09:25 ]
Post subject:  Re: E60 M5 Ekinn 130.000

Alpina wrote:
SteiniDJ wrote:
Alpina wrote:

2) þetta eyðir svo miklu benzíni á gjöfinni að manni blöskrar ,, og rúmlega það ((SL 55 Carlsson er með mun minni eyðslu en S85)) og þetta eyðir miklu innanbæjar ..... be aware

Þú átt ekkert að vera að pæla í eyðslu á svona ,,, ((high-performance)),,, vél! Vera á 318 ef þú ert í þeim hugsunum!!!

Þetta er akkúrat mergur málsins ... :thup:

Við þekkjum einn í Team BE Sveinbjörn sem seldi sinn og eyðslan var partur af ástæðunni :lol:

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/