Page 1 of 1

Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 22:43
by jens
Væri gaman ef einhver sem hefur aðgang tæki sig til og uppfærði reiknivélina, Evran er 74 kr í henni.

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 23:16
by 300+
jens wrote:Væri gaman ef einhver sem hefur aðgang tæki sig til og uppfærði reiknivélina, Evran er 74 kr í henni.


those were the days :bawl:

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 23:23
by iar
Gengið er komið í lag en breyttust ekki allar reikniforsendur núna um áramótin? Er það ekki CO2 eða þyngd sem ræður við útreikning á innflutningsgjöldum?

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 23:29
by Alpina
iar wrote:Gengið er komið í lag en breyttust ekki allar reikniforsendur núna um áramótin? Er það ekki CO2 eða þyngd sem ræður við útreikning á innflutningsgjöldum?


Hárrétt hjá Róbertssyni

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Wed 02. Feb 2011 00:05
by Bjarkih
tekið úr fréttablaðinu 31. janúar
Í tíundu grein laga um breytingu
á lögum um bifreiðagjald (númer
156 frá síðasta ári) segir:
„Liggi upplýsingar um skráða
losun koltvísýrings viðkomandi
ökutækis ekki fyrir skal losun ökutækis
ákvörðuð sem 0,12 grömm
á hvert kíló skráðrar eigin þyngdar
ökutækisins að viðbættum 50
grömmum af koltvísýringi.
Bifreiðagjald ökutækis, að eigin
þyngd meira en 3.500 kg, á hverju
gjaldtímabili er 46.880 kr. að viðbættum
2 kr. fyrir hvert kíló skráðrar
eigin þyngdar ökutækis umfram
3.500 kg. Bifreiðagjald ökutækis,
að eigin þyngd meira en 3.500 kg,
skal þó ekki vera hærra en 73.800
kr. á hverju gjaldtímabili.“

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Tue 08. Feb 2011 20:05
by arnib
Nema að þetta er um bifreiðagjöld, ekki innflutningsgjöld..

Bjarkih wrote:tekið úr fréttablaðinu 31. janúar
Í tíundu grein laga um breytingu
á lögum um bifreiðagjald (númer
156 frá síðasta ári) segir:
„Liggi upplýsingar um skráða
losun koltvísýrings viðkomandi
ökutækis ekki fyrir skal losun ökutækis
ákvörðuð sem 0,12 grömm
á hvert kíló skráðrar eigin þyngdar
ökutækisins að viðbættum 50
grömmum af koltvísýringi.
Bifreiðagjald ökutækis, að eigin
þyngd meira en 3.500 kg, á hverju
gjaldtímabili er 46.880 kr. að viðbættum
2 kr. fyrir hvert kíló skráðrar
eigin þyngdar ökutækis umfram
3.500 kg. Bifreiðagjald ökutækis,
að eigin þyngd meira en 3.500 kg,
skal þó ekki vera hærra en 73.800
kr. á hverju gjaldtímabili.“

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Thu 10. Feb 2011 12:18
by HAMAR
Er ekki flutningskostnaður orðinn töluvert meiri en 115.000kr.?

Re: Reiknivél á forsíðu

PostPosted: Fri 11. Feb 2011 00:18
by Benz
Svo er það skatturinn strákar, vaskurinn er 25,5% en ekki 24,5% ;)