Page 1 of 1

Taka í sundur framljós?

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 19:50
by slezz
Sælir,
ég er búinn að vera leita svolítið en skilað litlum árangri, kannski það sé fljótlegra að spyrja hér
Gæti einhver bent mér á DIY þráð með hvernig ég á að losa framhliðina(plasthlífina) af aftermarket límdum facelift ljósum..pælingin er að sprauta botninn

Re: Taka sundur framljós?

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 23:05
by slezz
Laumar enginn að góðri aðferð? Var búinn að heyra: að setja þau í bakaraofn og leyfa siliconinu að bakast, er hálf illa við það :lol:

Re: Taka í sundur framljós?

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 23:09
by slezz
Þetta á nú kannski heima í tæknilegu, kannski einhver færi þetta fyrir mig

Re: Taka í sundur framljós?

PostPosted: Tue 01. Feb 2011 23:15
by rockstone
þegar ég opnaði framljósin á subaru notaði ég hárblásara og skrúfjárn, bara taka þinn tím til að skemma ekkert, skera svo í kíttið þekar þú nærð að stía þessu einhvað í sundur.

Re: Taka í sundur framljós?

PostPosted: Wed 02. Feb 2011 18:38
by Skúli
Ég er búinn að surta nokkur framljós og ég geri það alltaf þannig að ég sting þeim inní bakarofn við svona 80° í ca 5 min og sker á kíttið og þvinga þau svo í sundur með skrúfjárni

Re: Taka í sundur framljós?

PostPosted: Thu 03. Feb 2011 12:05
by slezz
Já, það er akkurat það sem við gerðum, prófuðum okkur áfram á hitanum á ofninum..byrjuðum í 60° í 2 mín og svo alltaf meira og meira, þetta tókst á endanum eftir að öll þau verkstæði sem ég talaði við, höfðu engann áhuga að reyna taka þetta í sundur og sögðu mér að þetta væri ekki hægt. En aftur á móti var eitt verkstæði sem hélt að hann næði þessu í sundur en hann hætti svo þegar hann hélt að hann væri að brjóta það. En það þurfti bara þolinmæði. Fyrra ljósið var meira svona tilraunar, en ljós nr 2 "datt" í sundur einmitt á 80° og minnir að það hafi verið í 6 mín inní ofninum.