Page 1 of 2
Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 17:56
by Hrannar E.
Veit ekki alveg hvort þetta eigi að vera hérna en stjórnendur færa þetta þá bara.
En var að hugsa þar sem að ég er með filmur allan hringinn hjá mér samt frekar ljósar frammí og ég nenni ekki að vera að standa í því aða fá endurskoðun og þurfa að rífa filmurnar úr. Gæti ég ekki bara tekið úr sambandi takkana til að skrúfa gluggana upp og niður ? eða er það meira mál en maður heldur ? Það er varla hægt að setja útá það að gluggarnir virki ekki eða hvað ?
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 18:09
by rockstone
taka filmur úr, fara í skoðun, láta filma aftur.
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 18:31
by íbbi_
maður hefur heyrt af mönnum gorta sig af þessu "trikki" en hef nú sjálfur séð mann gera sig af afar miklu fífli við að reyna þetta
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 18:43
by Hrannar E.
íbbi_ wrote:maður hefur heyrt af mönnum gorta sig af þessu "trikki" en hef nú sjálfur séð mann gera sig af afar miklu fífli við að reyna þetta
gert sig af fífli hvernig ?
en málið er að ég tími eiginlega ekki að rífa þær úr og filma aftur....
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 18:52
by lulex
ekki vera filma þá til að byrja með

Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 19:21
by BjarkiHS
Þetta er bara 50/50 þar sem skoðunarmenn eiga að athuga rúður.
Ef rúður einhverra hluta vegna virka ekki þegar þær eru prufaðar þá er það endurskoðun.
Ef þær virka og eru filmaðar þá er það endurskoðun.
Minnir að það sé líka komið ákvæði um að það skuli vera hliðarrúður frammí.
Eina örugga ráðið er að fá "lánsrúður" til að setja í bílinn á meðan skoðun fer fram.
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 20:31
by Grétar G.
BjarkiHS wrote:Þetta er bara 50/50 þar sem skoðunarmenn eiga að athuga rúður.
Ef rúður einhverra hluta vegna virka ekki þegar þær eru prufaðar þá er það endurskoðun.
Ef þær virka og eru filmaðar þá er það endurskoðun.
Minnir að það sé líka komið ákvæði um að það skuli vera hliðarrúður frammí.
Eina örugga ráðið er að fá "lánsrúður" til að setja í bílinn á meðan skoðun fer fram.
Stundum fljótlegra að skifta bara um hurð... Helst að hafa þær í örðum lit til að gefa þeim svolítið puttann
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 20:41
by oddur11
konan reindi þetta einu sinni, tók öryggið úr og allt, en skoðunarkallinn fór bara með vassaljós ofaní og gaf henni endurskoðun
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 21:21
by Hrannar E.
Held að það sé frekar mikið vesen að skipta um rúður eða hurðar..... en ætli ég verði þá ekki bara að sjá hvort að ég komist í gegnum skoðun eins og hann er núna.
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 21:35
by BjarkiHS
Nei nei 4 boltar/rær og eitt rafmagnsplögg hvor hurð

Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 21:42
by Grétar G.
Enga stund að skifta um hurðar.
Myndi fara i skoðun og fa endurskoðun a ruðurnar og skifta svo um hurðar,, uppa að hann ma bara skoða það sem var gert athugasemd uta i endurskoðuninni
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 21:50
by ///MR HUNG
BjarkiHS wrote:Nei nei 4 boltar/rær og eitt rafmagnsplögg hvor hurð

Eru ekki stopparar í þínum bíl?
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 21:55
by íbbi_
kannski meira en að segja það að fá hurðar lánaðar á E90
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Mon 10. Jan 2011 22:04
by BjarkiHS
íbbi_ wrote:kannski meira en að segja það að fá hurðar lánaðar á E90
Það er svo allt annar hausverkur..

Jú nonni/Jón/hung..... og eitt splitti
Re: Filmur og skoðun

Posted:
Tue 11. Jan 2011 00:59
by auðun
ég var stoppaður og boðaður í skoðun.. ég á annað hurðasett og rúðusett, en ég skipti um rúðurnar. er enga stund gert, setti bara eina skrúfu í hurðarspjaldið og sleppti gluggalistunum.