Sælir,
Ef ég panta mér felgur frá USA sem kosta 878$ MEÐ sendingarkostnaði til Íslands, hvað myndi tollurinn reikna mikil gjöld ofan á það ? Mér dettur ekki í hug að skoða ShopUsa því þeir eru glæpsamlega dýrir.



gstuning wrote:fyrst er mögulega 7.5% tollur, svo 15% vörugjald og svo 25.5% vsk
semsagt annaðhvort af þessu tvennu
verð úti * 1.075 * 1.15 * 1.255 = loka verð
eða
verð úti * 1.15 * 1.255 = loka verð
Verð úti er verðið með flutning TIL Íslands.


íbbi_ wrote:hrikalega dýrt finnst manni alltaf að nota shopusa, en svo er hinsvegar annað mál að núna á síðustu og verstu hafa gömlu aðferðirnar sem borguðu sig ekki staðið jafn vel og þær gerðu

Zed III wrote:íbbi_ wrote:hrikalega dýrt finnst manni alltaf að nota shopusa, en svo er hinsvegar annað mál að núna á síðustu og verstu hafa gömlu aðferðirnar sem borguðu sig ekki staðið jafn vel og þær gerðu
Kanarnir eiga það til að leggja svo svakalega mikið á international shipping að það getur borgað sig að nota shopusa.
Thrullerinn wrote:Zed III wrote:íbbi_ wrote:hrikalega dýrt finnst manni alltaf að nota shopusa, en svo er hinsvegar annað mál að núna á síðustu og verstu hafa gömlu aðferðirnar sem borguðu sig ekki staðið jafn vel og þær gerðu
Kanarnir eiga það til að leggja svo svakalega mikið á international shipping að það getur borgað sig að nota shopusa.
Já þeir eru svolítið að fara fram úr sér þegar kemur að flutningi. Maður hefur allavega sterklega á tilfinningunni að seljendur séu að stinga hluta af fraktinni í vasann.
Hér er dæmi, fraktin á þessu er 40 þús, sem síðan leggjast gjöld ofan á það.
Hefur einhver fundið leið til að sjá hvað fraktin er, ég hef nú ekki lagt í vana að skoða reikningana sem hanga á kössum en spurning um að vigta þetta þegar hingað er komið og setja það í online calculator..
Væri ágætt að vita hvort verið sé að snuða mann, sérstaklega þar sem þetta er tollskylt!


aggibeip wrote:Miðað við reiknivélina á shopusa myndi þetta vera 198þúsund.. spurning um að finna bara út hvað þeir taka fyrir að fá þetta til sín og mínusa það af upphæðinni þá ættiru að vera kominn á ca. verðið sem það myndi kosta þig að flytja þær sjálfur til landsins![]()
Users browsing this forum: No registered users and 29 guests