Page 1 of 2

Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn! | Myndir!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 12:03
by geirisk8
Hér fann ég ágætis leiðbeiningar um hvernig eigi að taka álfelgur í gegn: http://www.ehow.co.uk/how_5527219_resto ... heels.html

Þar sem ég er kominn á vetrardekkin þá ætla ég að eyða vetrinum í að vinna í álfelgunum og gera þær eins og nýjar.

Mig langaði bara að spurja hvort einhver hér gæti bent mér á betri leiðbeiningar og jafnvel sagt mér hvaða efni eru góð til að framkvæma þetta ? Það eru sennilega ekki öll sömu efni til hér og i USA þannig að það sem er aðgengilegt hentar vel.

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 13:35
by ppp
Ég hef verið að spá í þessu sama sjálfur.

Er með ómálaðar álfelgur og það er drulla í nokkrum hornum sem er alveg helvíti föst. Spurning hvaða gums sé sniðugt að nota til að reyna ná því af?

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 20:45
by geirisk8
Eins og er þá veit ég ekki og er að vonast til að einhver sniðugur hérna geti svarað því hvaða efni séu best til að ná ÖLLU af felgunni til að getað pússað hana upp og sprautað.

Ég er svona létt-byrjaður og er að vinna í að þrífa alla olíu og drullu af:

Image

Image

Þrifin felga vinstra megin og óþrifin felga hægra megin

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 21:34
by Wolf
Menn hafa verið mjög hrifnir af Wurth felguhreinsi....m.a ég

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 22:54
by geirisk8
Wolf wrote:Menn hafa verið mjög hrifnir af Wurth felguhreinsi....m.a ég


Hversu sterkt efni er það ? Næ ég ÖLLU af með því ? Hvar fæst það ? N1 verslun eða eitthvað svoleiðis ?

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Tue 02. Nov 2010 23:28
by gunnar
geirisk8 wrote:
Wolf wrote:Menn hafa verið mjög hrifnir af Wurth felguhreinsi....m.a ég


Hversu sterkt efni er það ? Næ ég ÖLLU af með því ? Hvar fæst það ? N1 verslun eða eitthvað svoleiðis ?


Wurth hreinsiefni færðu í versluninni Wurth :thup:

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Wed 03. Nov 2010 13:56
by ppp
Ég keypti Wurth felgusýru og hún virðist svínvirka. Er reyndar ekki búinn að taka felgurnar vel í gegn, en ég prófaði þetta á einni eldsnöggt með uppþvottaburtsa, og þetta var alveg að taka burt drullu sem þetta rusl sem þeir selja á bensínstöðvum var ekki að ná að snerta.


Image


Sést ekkert of vel á svona subbu farsímamyndum, en stóri bletturinn neðst er t.d. eitthvað sem önnur efni hingað til höfðu ekki náð að snerta.

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Wed 03. Nov 2010 22:16
by geirisk8
Eigum við að ræða drulluga felgu ?

Image

Image
Hér er síðan efnið sem ég ætla að prófa á morgun eða bráðlega og sjá hvort ég nái pólýhúðinni af. Þetta er baaaaaneitrað helvíti!

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Wed 03. Nov 2010 22:39
by SteiniDJ
Næs, náðu nóg af myndum! 8)

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Thu 04. Nov 2010 01:41
by Andri4
En ef maður hreynsar þær alveg, alla pólýhúðun af og allt, vitiði hvað kostar að pólýhúða 4 felgur ef maður er búinn að gera alla undirvinnu sjálfur ?

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Thu 04. Nov 2010 02:16
by Axel Jóhann
27k

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Thu 04. Nov 2010 12:33
by geirisk8
Ég prófaði efnið áðan smávegis til að sjá hvort það virki og það svínvirkar! Pólýhúðin nánast dettur af og verður mjúk eins og gúmmi. Ég ætla að prófa þetta betur á eftir og skal reyna að taka einhverjar myndir en ég er bara með símann minn og það er léleg birta á verkstæðinu þannig að myndirnar verða ekkert hrikalega góðar en eflaust nóg til að gefa ykkur hugmynd um hvernig þetta virkar.

Andri4 wrote:En ef maður hreynsar þær alveg, alla pólýhúðun af og allt, vitiði hvað kostar að pólýhúða 4 felgur ef maður er búinn að gera alla undirvinnu sjálfur ?


Það fer líka eftir felgustærð, þeir rukka meira fyrir 18" eða stærri. Ég spurðist fyrir og fékk að vita að sandblástur (sem er reyndar óþarfi fyrir mig núna), sprautun og húðun væri 39þús fyrir mínar felgur sem eru 18".

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Thu 04. Nov 2010 14:32
by Thrullerinn
Ég verslaði svona 5l felguhreinsi í Málningarvörum, hann er að virka vel, en maður þarf vitaskuld að skola vel síðan skola enn betur. Svínvirkar.

Reyndar kostaði brúsinn 4-5 þúsund kall en þetta endist eflaust í 2-3 ár.

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Fri 12. Nov 2010 12:49
by geirisk8
Þetta efni sem ég er með er nokkuð gott og húðin verður mjúk eins og gúmmi og leysir sig frá felgunni. Ég er ekki búinn að ná að gera mikið seinustu daga því það er brjálað að gera í tónlistinni hjá mér alveg fram í desember. Ég ætla að taka hugsanlega 1-2 umferðir í viðbót og byrja svo að pússa.

Ég prófaði að taka eina felguna og pússa með 600 sandpappír og vatn til að ná burt tæringuna og gera allt hreint, smooth og flott. Það litla sem ég er búinn með kom mjög vel út!

Re: Ég ætla að taka álfelgurnar mínar rækilega í gegn!

PostPosted: Tue 16. Nov 2010 11:23
by geirisk8
Þetta tekur langan tíma og verður vinna en hér er smá update:

Image
Búin að taka hjólbarðana af framfelgunum.

Image
Á þessarri felgu er ég aðeins búinn að klína leysinum á til að ná húðinni af og það lítur mjög illa út svona þar til maður tekur nokkrar umferðir í viðbót. Pólýhúðin er ótrúlega sterk!

Image
Hér er sama felgan, ekki búinn að snerta hana með sandpappír ennþá.

Image
Hér sjáiði hina felguna þar sem ég er aðeins búinn að pússa ysta hringinn og inní en ekki teinana í miðjunni. Það er mikill munur.

Image
Hér er hún aftur og lítur strax mun betur út !

Ég er að hugsa hvernig ég eigi að tækla miðjuna því það er ótrúlega erfitt að ná þessu af. Ég er að hugsa um að pússa bara hringinn, spastla í skemmdir og passa að allt sé í lagi. Svo held ég að ég láti Pólýhúðun sjá um að ná restinni af. Það eru náttúrulega engar skemmdir innst í felgunni, heldur aðeins að utan.

Ég ætla að hringja í Pólýhúðun og spurja þá hvað sé best að gera.