Page 1 of 1
Að flytja bíl út.

Posted:
Thu 14. Oct 2010 21:27
by ///MR HUNG
Nú hafa nokkrir hér flutt bíla út og ég er að pæla að fara með einn til spánar og hafa hann þar.
Pælingi er sú hvort einhver hafi flutt bíl þangað og geti frætt mig um hvaða gjöld þarf að borga þegar bíll er skráður á númer.
Já og hvenar hættir frú norræna að ganga og hvenar byrjar hún aftur?
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Thu 14. Oct 2010 22:49
by BjarkiHS
Skv. heimasíðunni þeirra þá gengur hún allt árið
http://smyril-line.is/
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Thu 14. Oct 2010 22:55
by bimmer
Ekki til Íslands.
Tímabilið er apríl-sept.
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Fri 15. Oct 2010 14:42
by BjarkiHS
Norræna verður svo í siglingum í vetur með frakt en farþegar geta bókað far með 2 daga fyrirvara og aðeins aðra leiðina. Smyril Line tekur enga ábyrgð ef ferð verður felld niður vegna veðurs og sigla meinn því á eigin ábyrgð. Vegna þessa fyrirkomulags er Seyðisfjörður ekki inní áætlun okkar á heimasíðunni frá nóvember til mars en þeir sem vilja bóka sig á þessum skilmálum geta gert það.
Skipið siglir eftir haust og vetraráætlun, verður á þriðjudögum og miðvikudögum á Seyðisfirði, fimmtudögum og mánudögum í Færeyjum og á laugardögum í Danmörku.
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Sun 17. Oct 2010 23:14
by ///MR HUNG
Veit bara enginn neitt???
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Sun 17. Oct 2010 23:17
by bimmer
///MR HUNG wrote:Veit bara enginn neitt???
Google is your friend:
http://www.justlanded.com/english/Spain ... ting-a-Car
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Mon 18. Oct 2010 09:30
by jonthor
Ég lét shippa mínum til Rotterdam og sótti hann síðan þar. Það gæti þó verið orðinn ansi dýr kostur í stöðunni. Ég var hins vegar í námi og hafði bílinn á íslenskum númerum allan tímann, svo ég þurfti ekki að greiða nein gjöld.
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Mon 18. Oct 2010 13:55
by 20"Tommi
Norræna gengur allt árið en er bara ekki 100% og er aðalega í vöruflutningum en það má alltaf
ræða við þá um allskonar díla
Ekkert mál fyrir þig að hafa bílinn þar en hafðu hann bara á ísl. númerum
Svo leggur þú bara númerin inn þegar að þú ert ekki að nota hann .
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Mon 18. Oct 2010 20:37
by ///MR HUNG
Jájá og hvað á ég þá að borga margar sektir fyrir að mæta ekki í skoðun
Ég hef ekkert við íslensk númer að gera því bílinn kemur aldrei aftur hingað og verður seldur úti eftir einhver ár.
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Mon 18. Oct 2010 23:25
by Aron
viewtopic.php?f=16&t=33743&p=441686&hilit=sko%C3%B0un+erlendis#p441686Bjarki wrote:rak augun í þetta:
Er hægt að láta skoða ökutækið erlendis?
Ef ökutæki sem skráð er hér á landi er í notkun erlendis skal færa það til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunarstöð innan EES. Eigandi ökutækisins skal senda staðfestingu og niðurstöðu skoðunarinnar til Umferðarstofu svo komist sé hjá álagningu vanrækslugjalds.
http://www.us.is/id/1000329virkilega gott að hafa þetta svona á prenti fyrir þá okkur sem eiga bíla á erlendri grundu.
spurning hvort maður fái akstursheimild til að hafa í framglugganum ef skoðunin er runnin út þegar maður tekur út númerin.
Re: Að flytja bíl út.

Posted:
Thu 21. Oct 2010 11:48
by 20"Tommi
er oft búin að láta skoða minn erlendis.
Svo sendir maður bara fax og fær þennan fína límmiða