Page 1 of 1

Car Cover - Hjálpar þetta, og hversu mikið?

PostPosted: Mon 04. Oct 2010 16:06
by Gunni13
Góðan Daginn
Ég er að spá í að pannta mér svona cover fyrir bílinn minn ( eitthvað svona http://216.60.144.111/ecatcust/make.asp ... 2369450938 ), en er ekki viss hvort þetta muni hjálpa mér mikið með að halda t.d. bleytu (og þar einnig ryði) og öðru í burtu. Er eitthver hér sem hefur notað svona og getur sagt mér afraksturinn, hvort þetta hjálpi mikið við að halda bílnum eins heil-legum og hann getur orðið?
Bíllinn verður að öllum líkindum geymdur í skýli sem verður svona hálf-lokað þannig að það mun blása eitthvað inn í það og gæti komið eitthvað af dropum, og einnig var líka hugsunin að setja þetta utan um bílinn þegar ég er að fara frá honum í sólarhring eða meira.
Takk Takk.
Gunnar.

Re: Car Cover - Hjálpar þetta, og hversu mikið?

PostPosted: Mon 04. Oct 2010 19:53
by Thrullerinn
Ef það gustar íslenskum vindi þá kemst hreyfing á coverið og nuddast á einni nóttu í gegnum glæruna, ef bíllinn er ekki tandurhreinn þarf ekki nema eitt laufblað eða smá skít til að margfalda áhrifin.

Gott að vera með þetta inni í skúr til að koma í veg fyrir að rennilásar, tölur og almenn umgengni rispi ekki bílinn.

Ég notaði reyndar svona cover í öskufallinu en þá var mjög lítill vindur..

Re: Car Cover - Hjálpar þetta, og hversu mikið?

PostPosted: Mon 04. Oct 2010 20:13
by urban
efa ð bíllinn er ekki innandyra þá skalltu sleppa þessu