Page 1 of 2

Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 14:16
by Zed III
z3 - fékk einn lykil
540 - fékk einn lykil
x5 - fékk einn lykil


e30-driftarinn hjá Aron - fékk tvo lykla og týndi einum (og ég var bara með bílinn í 2 daga)

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 14:22
by sosupabbi
fékk 2 af gamla 525inum en bara einn af sjöunni

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 14:43
by Zed III
svosem ekkert skrítið að menn draga lappirnar við að kaupa nýja lykla, þetta er að kosta tugi þúsunda stykkið.

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 15:09
by Berteh
Ég myndi samt láta kóda út þá lykla sem þú átt ekki, sbr málið með M5 hérna um daginn sem var stolið sökum aukalykils

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 15:15
by Zed III
Berteh wrote:Ég myndi samt láta kóda út þá lykla sem þú átt ekki, sbr málið með M5 hérna um daginn sem var stolið sökum aukalykils


er þá settur inn nýr kóði í bílinn og þá lykla sem ég á ennþá?

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 15:43
by kalli*
Fékk einn lykil hjá árnabirni,talaði svo við Magga B til að fá aukalykilinn og viti menn, er allt í einu með þrjá lykla að sama bíl. :lol:

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 17:21
by Berteh
Zed III wrote:
Berteh wrote:Ég myndi samt láta kóda út þá lykla sem þú átt ekki, sbr málið með M5 hérna um daginn sem var stolið sökum aukalykils


er þá settur inn nýr kóði í bílinn og þá lykla sem ég á ennþá?

Nei nei, það eru bara allir lyklar útilokaðir nema þinn
þ.e útilokaðir í að starta, þeir ganga samt ennþá að sílendernum

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 17:36
by DiddiTa
Fékk 4 eða 5 með mínum, 2 með fjarstýringu og svo 2 eða 3 einhverja plastlykla

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 17:52
by Rafnars
Fékk einn sem var við það að verða búinn með mínum, lét smíða nýjann sá opnar bílinn en kveikir ekki á honum, fór uppí B&L og pantaði nýjan lykil, þeir pöntuðu service lykill og voru með leiðindi, svo var annar pantaður (réttur) og nú á ég 4 lykla og hef ekkert að gera með 3 þeirra :lol:

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Fri 27. Aug 2010 18:26
by ömmudriver
Það fylgdi einn með sjöunni minni og plastið var brotið í drasl og ljósið löngu horfið þannig að ég pantaði bara nýjan sama dag og ég keypt'ana :)

Og allir aðrir BMW sem ég hef átti hafa einungis verið með einn lykil.

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Sat 28. Aug 2010 07:37
by Danni
Hef átt 1 lykil af öllum BMW-unum mínum nema núverandi E39 540. Á 2 lykla með fjarstýringu af honum.

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Sat 28. Aug 2010 12:47
by gunnar
Já þegar maður pælir í því þá fæ ég oftast bara einn lykil með BMW bílunum mínum.

Nema af E30, þá á ég 4-5 lykla. Meðal annars plastlykil orginal frá BMW sem hægt er að taka afrit af.

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Sat 28. Aug 2010 15:52
by Bjarkih
Ég hef nú bara átt 2 BMW en fengið 2 lykla með báðum. Reyndar voru 2 í einu að 520 því annar gekk í startarann en hinn að hurðunum :lol: þannig að ég var með 2 sett. (4 lykla)

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Sat 28. Aug 2010 20:30
by iar
Allir fjórir orginal lyklarnir til staðar fyrir E36! 8) 8) Meira að segja smá djús enn á rafhlöðunni í lyklinum með vasaljósinu. :lol:

En bara tveir non-orginal lyklar að E30, hann virðist vera með þetta bmw lyklatýnslusyndrome. :-(

Re: Hvað er þetta eiginlega með lykla á þessa bmw bíla

PostPosted: Mon 30. Aug 2010 14:52
by fart
ég á allt draslið fyrir GT, tvo með fjarstýringu, einn venjulegan og svo plast lykilinn.

Þegar ég keypti MINI um daginn var ég að prútta um einhverja hundruði Evra. Svo átti ég að fá aukalykil í pósti, sem kom svo í ljós að var týndur. Fór til BMW og pantaði nýjan... € 185 takk fyrir :thdown:

Segir manni að það er fokkings value í þessu dóti, ef það fylgir.