bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

crash....ARG!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=1&t=4406
Page 1 of 2

Author:  ta [ Fri 06. Feb 2004 18:34 ]
Post subject:  crash....ARG!!

hvað eru menn að þvælast á sumardekkjum?
´lenti í því áðan að það var keyrt á mig,
ungur bílstjóri á sumardekkjum brunaði yfir
á rauðu. það buðu sig strax fram 2 bílstjórar sem vitni,
að ég væri á grænu ljósi.
ég var komin ca 1,5 metra inná gatnamótin þegar
bíllinn kom og þrumaði á mig, ég sá hann ekki koma
því það var sendibíll við hliðina á mér á ljósunum.

hvert á ég að fara til að láta gera við
þetta?

einhverjar ráðleggingar?

TIA
[img]http://www.we-todd-did-racing.com/wetoddimage.wtdr/i=wMjcyODc0NnM0MTNkZmQzMXk1NDE%3D.jpg
Image

Author:  Svezel [ Fri 06. Feb 2004 19:06 ]
Post subject: 

Æ æ æ æ æ æ æ :evil:

Þetta er ömurlegt, hvað er fólk að þvælast á sumardekkjum í þessari færð eins og þú segir?

Ég myndi athuga með Rétt á Viðarhöfða, þeir gera við fyrir B&L og ku vera mjög góðir

Author:  Jss [ Fri 06. Feb 2004 19:14 ]
Post subject: 

Svona fólk ætti ekki að hafa bílpróf, fólk á að keyra miðað við aðstæður og búa bílinn eftir því og eins og færðin er í dag þá eiga bílar á sumardekkjum helst ekkert að vera hreyfðir. :evil:

En ég mæli með Rétti (sprautuverkstæði B&L) hef ekkert nema gott heyrt um þá og hef heyrt að þetta sé eitt besta sprautuverkstæði landsins. Og stutt að sækja ef það vantar eitthvað uppá. ;)

Author:  Alpina [ Fri 06. Feb 2004 19:27 ]
Post subject: 

FREKAR neikvætt...........Hörmungin ein

:( :( :( :( :( :(

Author:  jens [ Fri 06. Feb 2004 19:56 ]
Post subject: 

Þetta er ferlegt en betur fer er þetta bara boddy skemmd ekkert klestur yfir. Finn til með þér. :(

Author:  ta [ Fri 06. Feb 2004 20:06 ]
Post subject: 

takk fyrir strákar, ég fer í Rétt.
en hvernig er það gera þeir við húddið/stuðaran
eða skipta þeir um, vitiði það?

Author:  Jss [ Fri 06. Feb 2004 20:11 ]
Post subject: 

Það þarf að meta það hverju sinni myndi ég halda en annars var "328 touring" að vinna hjá Sprautuverkstæði B&L í gamla daga þannig að hann veit kannski eitthvað um það.

Author:  Sezar [ Fri 06. Feb 2004 20:41 ]
Post subject: 

Húddið færðu nýtt, brettið verður rétt og stuðarinn fer í plastviðgerð. Mín spá(vinn við að sprauta).

Author:  iar [ Fri 06. Feb 2004 20:44 ]
Post subject: 

Úff.. ömurlegt. :-( Samhryggist innilega.

Andskotans sumardekkjaasnar að vera að keyra í svona færð. :-( Ef fólk þykist ætla að keyra á sumardekkjum yfir veturna þá ætti það að reyna að hafa vit á því að keyra ekki þegar það er ekki sumardekkjafærð. :-(

PS: Svo er auðvitað annað mál með rauðu ljósin sem virðast vera orðin óljós viðmið frekar en stöðvunarskilda... :roll:

Author:  Stefan325i [ Fri 06. Feb 2004 23:17 ]
Post subject: 

Ekki neitt spasl!!!!!!!! Nei Nei Nei Nei fá nyja hluti. ekki vill ég vera með eithvað helvítis spasl í bílnum mínum !!!!!!!!!!!!!!!!!!

þeir hljóta að vita það hjá þessu réttingar vextæði.

helvíti leiðinlegt og bara vesen að lenda í svona :cry:

Author:  Tommi Camaro [ Sat 07. Feb 2004 00:35 ]
Post subject: 

Jss wrote:
Svona fólk ætti ekki að hafa bílpróf, fólk á að keyra miðað við aðstæður og búa bílinn eftir því og eins og færðin er í dag þá eiga bílar á sumardekkjum helst ekkert að vera hreyfðir. :evil:

En ég mæli með Rétti (sprautuverkstæði B&L) hef ekkert nema gott heyrt um þá og hef heyrt að þetta sé eitt besta sprautuverkstæði landsins. Og stutt að sækja ef það vantar eitthvað uppá. ;)

rétttur er ekki gott af eiginn reynslu á eftir að fara og tala við þá
þeir máluðu skotið mitt í vitlausum lit síðan þegar þér ætluðu að laga það þá neituð þeir að láta mig hafa bílaleigu bíll. ég var tjónþolandi og í rétti.

Author:  Bjarki [ Sat 07. Feb 2004 04:09 ]
Post subject: 

RÉTTUR er að mínu mati hræðilegt verkstæði. Ég fór 2x með bíl þarna og það kostaði alltaf endurkomu. Það sem þeir voru að klikka á var svo aulalegt! Sandpappírsför í lakkinu þ.e. undirvinnan illa unnin. Stuðarar skakkir og eitthvað í þessum dúr. Í eitt skiptið þá var vatn í bílnum sem þurfti að þurrka. Það er mjög mikið mál að þurrka svona vatn og við stofuhita þá tekur um viku að fá svona teppi alveg þurrt, mín reynsla. En þeir létu bílinn bara ganga í nokkra klukkutíma fyrir utan hjá sér og ég lenti í tómu veseni með að hreinsa innspýtinguna eftir þetta. Bensínið kláraðist og það fór skítur inn á innspýtinguna og bíllinn fór ekki í gang, geymirinn kláraðist. Einfalt að laga en eitthvað sem maður á ekki að þurfa að standa í.
Ég hef aðeins fengist við það að sprauta í tómstundum og fagmenn eiga ekki að skila frá sér verkum þar sem sést í sandpappírsför, þar sem glæran er hömruð eða þar sem glæran hefur lekið.

Author:  fart [ Sat 07. Feb 2004 08:45 ]
Post subject: 

Hvar var silfraði M5 E39 lagaður.. er hann ekki dæmi um fáránlega vinnu.

En líttu á björtu hliðarnar Torfi. Alltaf gott að fá nýsprautað húdd. Láttu þá taka bæði frambrettin í leiðinni.

Author:  bebecar [ Sat 07. Feb 2004 13:37 ]
Post subject: 

Þetta er fúlt maður, vonandi verður almennilega gert við þetta!

Author:  Dr. E31 [ Sat 07. Feb 2004 14:12 ]
Post subject: 

Verður ekki bara settur M stuðari í staðinn? :wink:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/