Inspection I & II

Posted:
Sun 01. Feb 2004 18:46
by bjahja
Getur einhver sagt mér svona sirka hvað það myndi kosta mann að henda bílnum í I eða II.
Það fer að líða að því að maður þarf að láta kíkja á kallinn


Posted:
Sun 01. Feb 2004 20:01
by Jss
Þú færð náttúrulega nákvæmustu töluna ef þú hringir bara í B&L t.d. á morgun (575-1200) og spyrð þá á verkstæðinu, annars man ég ekki hvað það kostar, minn fór í Inspektion I og lét fara vel yfir bílinn allan fljótlega eftir að ég fékk hann.


Posted:
Sun 01. Feb 2004 20:09
by Dr. E31
Ég fór með minn í Inspection II í fyrra, það kostaði mig 74.000.- og tók tvo daga, það var gerður alveg hellingur við bílinn.
Inspection I á að kosta eitthvað mikklu minna, í kringum 25.000.-.

Posted:
Sun 01. Feb 2004 23:34
by bjahja
Sem þýðir að ég þarf að vinna eins og versta hóra þennan mánuðinn til að henda honum í Inspection


Posted:
Mon 02. Feb 2004 16:37
by Alpina
Ég vil meina að það þýði ekkert að kaupa sér ,,Dollaragrín,, og svo sjá eftir hvað tækið: ,,eyðir ,,viðhald,,bilar,, osfrv.. en allt í lagi samt að hafa þetta innan ákveðins ramma,ekki satt,,
ps.. er nú þegar búinn að kasta hátt í 200.000 íslkr. í drif og öxla og allskonar piss í minn bíl (( vissi svo sem af því))
Sv.H

Posted:
Mon 02. Feb 2004 17:03
by bjahja
Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara
En ég vissi alveg hvað ég var að fara útí þegar ég keypti mér bílinn minn, ég er búinn að vinna eins og brjálæðingur í nokkur ár og keypti bílinn og tók lítið lán fyrir honum, ég eyði nánst öllum mínum peningum í bílinn og geri það glaður


Posted:
Mon 02. Feb 2004 17:06
by Haffi
Sem betur fer er ég laus við þessa dellu í bili


Posted:
Mon 02. Feb 2004 17:09
by Haffi

Posted:
Mon 02. Feb 2004 17:12
by Alpina
bjahja wrote:Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara
En ég vissi alveg hvað ég var að fara útí þegar ég keypti mér bílinn minn, ég er búinn að vinna eins og brjálæðingur í nokkur ár og keypti bílinn og tók lítið lán fyrir honum, ég eyði nánst öllum mínum peningum í bílinn og geri það glaður

Þetta er alls ekki illa meint eða ,,,SKOT,,
þvert á móti, ég meina að ,,alltaf að fara til viðurkennds aðila og láta hann laga eða þjónusta bílinn svo hægt sé að viðhalda þjónustubókinni..
Ath. í UK eru BMW bílar metnir ef Þeir eru ekki með bók ..þeas ástandsskoðun útlit slit osfrv.......
Sv.H

Posted:
Mon 02. Feb 2004 17:21
by Svezel
Talandi um inspection, hvað mynduð þið segja að það ætti að líða langur tími milli þeirra? Minn hefur nefnilega ekki verið ekinn nema um 6000km á 27mán og mér finnst nú að það sé kominn tími á check


Posted:
Mon 02. Feb 2004 17:27
by Alpina
Svezel wrote:Talandi um inspection, hvað mynduð þið segja að það ætti að líða langur tími milli þeirra? Minn hefur nefnilega ekki verið ekinn nema um 6000km á 27mán og mér finnst nú að það sé kominn tími á check

Hafðu engar áhyggjur ,,,,,,,, á nýrri BMW bílum er það eldsneytismagnið sem fer í gegn um vélina sem stjórnar hvenær insp. á sér stað
er búinn að kynna mér það rækilega
Sv.H

Posted:
Mon 02. Feb 2004 18:02
by Svezel
Alpina wrote:Svezel wrote:Talandi um inspection, hvað mynduð þið segja að það ætti að líða langur tími milli þeirra? Minn hefur nefnilega ekki verið ekinn nema um 6000km á 27mán og mér finnst nú að það sé kominn tími á check

Hafðu engar áhyggjur ,,,,,,,, á nýrri BMW bílum er það eldsneytismagnið sem fer í gegn um vélina sem stjórnar hvenær insp. á sér stað
er búinn að kynna mér það rækilega
Sv.H
Mjög gott, BMW kann þetta
Það vantar hvort eð er ekkert á hann og olían virðist mjög góð.

Posted:
Mon 02. Feb 2004 18:08
by bjahja
Alpina wrote:bjahja wrote:Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara
En ég vissi alveg hvað ég var að fara útí þegar ég keypti mér bílinn minn, ég er búinn að vinna eins og brjálæðingur í nokkur ár og keypti bílinn og tók lítið lán fyrir honum, ég eyði nánst öllum mínum peningum í bílinn og geri það glaður

Þetta er alls ekki illa meint eða ,,,SKOT,,
þvert á móti, ég meina að ,,alltaf að fara til viðurkennds aðila og láta hann laga eða þjónusta bílinn svo hægt sé að viðhalda þjónustubókinni..
Ath. í UK eru BMW bílar metnir ef Þeir eru ekki með bók ..þeas ástandsskoðun útlit slit osfrv.......
Sv.H
AAAAAAAA, ég skil
Já mér líður alltaf betur að borga aðeins meira fyrir að fara með hann til Bjéogell