Það er alveg rétt að það borgar sig ekki að flytja inn bíl
fyrir svona litla upphæð.
Ástæðan er einfaldlega sú að þegar um svona litla fjárhæð er
að ræða verður flutningskostnaðurinn svo ofboðslega stór partur
af dæminu. Síðan þegar tollur, vaskur og allt þetta skrafs hefur
verið dregið af er lítill peningur eftir fyrir sjálfum bílnum úti.
Fyrir 400 þúsund ættiru að geta fengið þér E36 316 eða 318 bíl,
og jafnvel ef þú ert heppinn 320i.
Ef þú ætlar útí E30 þá ættiru að geta, með svona fjármunum, fengið
nokkurnveginn hvaða bíl sem er. Mjög fáir E30 bílar fara uppí svona tölur, nema þeir séu eitthvað project sem búið er að spandera miklu í.
Fyrir bestu bensínnotkun myndi ég segja E36 316i/318i.
Fyrir mestu akstursskemmtun (kraftur...

) myndi ég segja E30 325i,
Fyrir mestu þægindin (og þá meiri eyðslu :S) myndi ég segja E34 fimmu.
