Page 1 of 2

Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 22:47
by -Hjalti-
Þarf að láta skipta um frammbretti á 7línu bmw og mála og líklega eyða út í gegnum tryggingar , ásamt eitthverju auka á mínum vegum. Hvaða verkstæði mælið þið með. Sambandi við gæði og fljóta þjónustu ? Ég er alveg tilbúin til að borga svo þetta sé gert 100% svo enga fúskara.

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 23:08
by Saxi
Bílamálun Suðurlands

Hef notað nokkra sprautara og þessir standa uppúr. Bæði hvað varðar vinnubrögð, sem eru tipp topp, og eins heiðarleika. Allt stóðst eins og stafur á bók (tímasetningar t.d.)

kv
Egill

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 23:48
by íbbi_
lakkskemman,

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 23:49
by Hlynur___
hvað kom fyrir?

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 23:54
by snusa
Bifreiðaverkstæði Jónasar
Smiðjuvegi 46
Bimminn minn er stórglæsilegur eftir þá 8)

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Tue 10. Nov 2009 23:58
by íbbi_
bakkað utan í, bara dæld á frambretti

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 00:34
by Hlynur___
Gerðu þráð um vagninn í *bílar meðlima* :thup:

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 02:46
by -Hjalti-
Hlynur___ wrote:Gerðu þráð um vagninn í *bílar meðlima* :thup:


þegar ég er buin að gera eitthvað sniðugt við hann. Lækkun er möst og svo er ég mikið að pæla í lip á skottið og neðaná frammstuðarann :)

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 07:06
by Alpina
íbbi_ wrote:lakkskemman,


Án þess að lasta önnur verkstæði ,, né að lítillækka vinnubrögð starfsmanna á þeim stöðum ,

þá tek ég undir með Ívari,, við erum að tala um skotheld vinnubrögð

en lakkskemman er reyndar ekki þekkt fyrir að vera ódýrust

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 07:39
by arnibjorn
Alpina wrote:
íbbi_ wrote:lakkskemman,


Án þess að lasta önnur verkstæði ,, né að lítillækka vinnubrögð starfsmanna á þeim stöðum ,

þá tek ég undir með Ívari,, við erum að tala um skotheld vinnubrögð

en lakkskemman er reyndar ekki þekkt fyrir að vera ódýrust

Ég hef látið mála bíl og felgur hjá Lakkskemmunni. Mjög vel gert og síðan er nafni minn hann Árni ágætis félagi hans pabba þannig að ég fékk þetta á fínu verði líka :)

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 16:34
by íbbi_
þú ert alveg að miskilja bmw delluna hjalti.. getur alveg sýnt myndir af bílnum þótt þú sért ekki búinn að lækka 8)

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 21:40
by bimmer
Fór einu sinni og fékk tilboð hjá Lakkskemmunni :shock:

€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€€

Hef látið Árna Sezar og Brynjar Kópsson sjá um mín mál annars - þeir hafa staðið sig
vel.

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Wed 11. Nov 2009 22:03
by Dóri-
hef bara látið réttingarverkstæði jóa mála fyrir mig það sem þarf, hann er samt voða tregur á að taka bmw en það sem hann gerir er flott.

Víkurós er líka snilld

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Thu 12. Nov 2009 16:51
by -Hjalti-
Valdi lakkskemmuna :) Þeir græja þetta fljótt. Sökkar að keyra um lengi með dældað frammbretti á svona snyrtilegum bíl

Re: Með hvaða sprautunarverkstæði mælið þið ?

PostPosted: Fri 13. Nov 2009 00:43
by Axel Jóhann
Sprautun.is hafa líka græjað fyrir mig, mjög snöggir og vel gert hjá þeim, ekki dýrir heldur.