Opnaði skúrinn og sá að það hafði sprungið garðslanga út af þrýsting og vatn sprautaðist út um gatið. Ekki kannski stórmál fyrir utan að hurðin á z3 var opinn og vatn í nánast upp að hurðastaf bílstjóramegin.
Ég sleppti því að fara í gymmið og í staðinn þurfti ég að fara að ausa úr bílnum eins og lekum bát.
Task fyrir kvöldið: sækja vatnssugu til að ná meiri bleytu úr teppinu og svo verður ráðist á að taka það úr til að þerra það.
Áhugaverð byrjun á deginum, svo ekki sé meira sagt.




