Page 1 of 1

væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 12:57
by aronsteinn
Image

Bíllinn kostar litlar 59 milljónir króna.
Þriðjudagur 22. september 2009 kl 10:13

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)
Ólafur Ólafsson vann lengi á tæknideild Stöðvar 2 og gekk þá undir gælunafninu „Óli afruglari“. Upp á síðkastið hefur hann gert það gott í bílakaupum og á bílasölu í Belgíu. Eins og sagt var frá í Séð og heyrt fyrr á árinu hefur Ólafur keypt vel yfir sex hundruð bíla, bæði nýja og notaða, og selur þá á bílasölunni sem og um alla Evrópu, í Suður-Ameríku og Afríku.

Ólafur býr í Lúxemborg og setti glæsilegan Ferrari-sportbíl á sölu á bílasölunni bill.is hér á landi um helgina. Bíllinn er ekinn tíu þúsund kílómetra og kostar litlar 59 milljónir króna.

Það hefur gengið fjöllunum hærra að bíllinn sé í eigu nafna Ólafs, útrásarvíkingsins sem oftast er kenndur við Samskip, en á það ekki við rök að styðjast.

Nánar í DV í dag.

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:00
by Jón Ragnar
fyrstur með fréttinar :lol:

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:12
by HAMAR
velkominn á spjallið aronsteinn :lol:

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:26
by 300+
Ég væri allavega alveg til í þessa Lödu sport þarna fyrir aftan...

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Thu 24. Sep 2009 09:21
by finnbogi
300+ wrote:Ég væri allavega alveg til í þessa Lödu sport þarna fyrir aftan...


viltu ekki bara ríða mér á lödu brakinu ha!!!
http://www.youtube.com/watch?v=lzLwbyd7AIc

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Fri 25. Sep 2009 02:40
by Vlad
finnbogi wrote:
300+ wrote:Ég væri allavega alveg til í þessa Lödu sport þarna fyrir aftan...


viltu ekki bara ríða mér á lödu brakinu ha!!!
http://www.youtube.com/watch?v=lzLwbyd7AIc


Hverskonar fæðingarhálfviti ertu eiginlega!?
Tja það er nú betra að fæðast þannig heldur en að verða þannig smátt og smátt með tímanum :lol:

Þetta er svo langbestu grínsketchar sem hafa verið gerðir á íslandi.

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Fri 25. Sep 2009 13:21
by Jón Ragnar
Vlad wrote:
finnbogi wrote:
300+ wrote:Ég væri allavega alveg til í þessa Lödu sport þarna fyrir aftan...


viltu ekki bara ríða mér á lödu brakinu ha!!!
http://www.youtube.com/watch?v=lzLwbyd7AIc


Hverskonar fæðingarhálfviti ertu eiginlega!?
Tja það er nú betra að fæðast þannig heldur en að verða þannig smátt og smátt með tímanum :lol:

Þetta er svo langbestu grínsketchar sem hafa verið gerðir á íslandi.



Djöfull er ég sammála :lol:

Re: væri maður ekki til í að eiga svona

PostPosted: Fri 25. Sep 2009 16:23
by Gunnar Þór
Vlad wrote:Þetta er svo langbestu grínsketchar sem hafa verið gerðir á íslandi.


Algjör klassík - þvílíkt "slap in the face" á sínum tíma, þegar Spaugstofugrín var að eina sem flólk heyrði.