Þrif á bílnum ykkar
Sælir,
var að velta fyrir mér hvernig þið færuð að þegar þið þrifuð bílana ykkar?
Það eru eflaust milljón mismunandi leiðir hérna og gaman að fá innsýn í hvað aðrir eru að gera og endilega segja hvaða efni menn eru að nota.
Hjá mér er þetta voðalega einfalt, bara nýbyrjaður að spá í þessu enda bara tveir mánuðir síðan fyrsti bíllinn kom í hús
- Felguhreinsir á felgur, skrúbba hann með svamp og skola af
- Skola af bíl með vatni
- Spreyja tjöruhreinsi og sápu á pústið og láta það liggja - nuddað af og skolað í lokin
- Tvær fötur og svampur á allan bíl með bílasápu
- Skolað af bíl
- Þurrkaður allur bíllinn og líka felgur
- Rúður teknar með Glass Cleaner að innan og utan
- Clean og Shine einhver froða spreyjuð á dekkin sem gerir dekkin eins og ný.
- Turtle Wax bón borið á og látið þorna, líka pústið
- Ryksugaður, mottur teknar með svamp, þurrkað af með rakri tusku að innan
- Borið á að innan, vínylgljáa
- Bón þurrkað af
- Mjallar hraðbón sett á hann til að fá svaka húð(þetta er geggjað)
- Hraðbónið þurrkað af og bíllinn shiiiny
Þetta er eflaust eitthvað rugluð aðferð en hún hefur virkað mjög vel núna amk.
hérna eru þrjár myndir af bílnum í tengslum við þrifin.

(smá ryð þarna sem sést, verður lagað fljótlega)