Page 1 of 2
Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 11:30
by Zed III
Er einhver sem þekkir forsögu þessa bíls, eða veit um fyrri eigendur ? Mér skilst að hann hafi verið einhverntímann í Keflavík.
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 11:39
by Aron Fridrik
ég veit ekki hvernig það hefur verið síðan að Danni seldi hann..
En Danni hugsaði virkilega vel um hann og með honum fylgdi mappa full af reikningum og dóti um þjónustusögu bílsins.. virkilega vel viðhaldið á þeim tíma
viewtopic.php?t=16690
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 12:06
by Zed III
Takk fyrir linkinn. Bílnum var greinilega haldið vel við hjá þessum Danna.
Var að fá hann í hendurnar og það er nokkuð langur listi af hlutum sem þarf að laga (loftkæling, topplúga, air-bag ljós, abs skynjarar, bensínmælir, fullt af stífum í hjólabúnaði etc). Ég hef sem betur fer allt sem þarf í það nema það vantar aðeins upp á skillsetið. Honum verður hjúkrað aftur í topp stand.
Það er eitt sem er að bögga mig, það er talað um sítt að aftan fíling á honum. Er þetta eðlilegt eða einhvert lækkunarstunt sem hefur klikkað illilega? Bæði afturdekkin eru nefnilega rosalega slitin að innan, en það gæti líka verið ballanstangarendinn sem er brotin sem veldur þessu missliti.

Það voru annars engir reikningar sem fylgdu með að ráði þegar ég fékk hann

Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 12:12
by Aron Fridrik
hann var með m suspension ef ég man rétt
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 12:22
by Zed III
það stóð í þræðinum að það væri m suspension, en á hann að lækka svona við það og getur það útskýrt misslit á dekkinu ?
Þetta eru 4-5 cm innst sem eru haugslitnir meðan það er fínt munstur annarstaðar.
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 17:18
by Freyr Gauti
Brotinn ballancestangarendi hefur vissulega áhrif á dekkjaslit.
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 17:49
by Zed III
áhrif vissulega, en mér finnst þetta bara svo mikið plús þetta er á báðum dekkjunum.
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 20:14
by ValliB
Gæti ekki bara einhver hafa verið að spóla allhressilega á einari?
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Fri 10. Jul 2009 21:52
by Zed III
hehe
jú, ætli það ekki bara
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Sat 11. Jul 2009 14:19
by Danni
Gamli minn. Til hamingju með hann!
Vona að þú kemur honum í það ástand sem hann var í þegar ég átti hann.
Topplúgu ævintýrið er hins vegar mér að kenna en það fauk upp húddið hjá mér á miklum hraða og það kýldi lúguna niður, ég lét laga toppinn og allt var klár (450þús kall) en seldi bílinn áður en ég fékk réttan mótor í lúguna. Samkvæmt B&L á að vera nóg að skipta um mótorinn til að fá topplúguna til að virka sem skyldi. Mótorinn verður að koma úr bíl með stál topplúgu en ekki gler og eftir 09/1998.
Ef það er eitthvað meira sem þú vilt vita um bílinn síðan ég eignast hann þá bara hefurðu samband

Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Sat 11. Jul 2009 14:38
by Zed III
Takk kærlega fyrir það. Ég verð pottþétt í sambandi. Gott að fá að vita þetta með mótorinn.
Þú værir örugglega ekki ánægður með ástandið eins og það er núna, en hann kemst í topp lag innan skamms.
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Sun 12. Jul 2009 08:18
by IngóJP
Virkar nokkuð hraðamælirinn hjá þér?
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Sun 12. Jul 2009 10:02
by Zed III
hann virkar, og einnig cruse controlið
Það er þó eitthvað pikkles í abs kerfinu þar sem þrjú ljós loga (spólvörnin, abs ljósið og bremsuljós). Tölvan segir vinstra meginn aftan en þar á hraðamælirinn að vera svo þetta er smá skrítið.
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Sun 12. Jul 2009 13:14
by skuliv
held að misslitið í dekkjunum sé aðalage af því að hann var mjög illa hjólastilttur. Ég lét hjóla stilla hann í vor og þá voru dekkinn orðin svoldið eydd að innan þannig að það er erfitt að segja til um hvort hann mis eyðir dekkjunum mikið núna..
Re: Þekkir einhver forsögu e39 540 með númer TZ-278

Posted:
Sun 12. Jul 2009 14:32
by Zed III
Takk fyrir það Skúli, það gæti útskýrt þetta. Ég held ég fari í að kaupa heilt kit af spyrnum og spindlum í hann að utan og læt svo hjólastilla hann aftur. Þá verður þetta vonandi pottþétt.