Page 1 of 1

Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Wed 01. Jul 2009 16:18
by Kull
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/20 ... darmaelis/

Í ljósi neitunar mannsins og þess að ekkert var skráð um prófun ratsjártækis við hraðamælinguna taldi dómari ekki fært annað en að sýkna manninn.

Nokkuð merkilegt.

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Wed 01. Jul 2009 16:25
by SteiniDJ
Þarf ekki að stilla mælitækin daglega? Ég hef heyrt að það sé hægt að mæla vegg á 120 km hraða ef það er ekki gert reglulega. Svo þarf lögreglan að skrá þessar stillingar og votta fyrir að þetta sé í lagi svo hægt sé að kæra í svona málum.

Veit ekki hvort þetta sé satt, en þetta hljómar ekkert asnalega því öll elektrónísk mælitæki þarf að stilla reglulega.

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Wed 01. Jul 2009 17:40
by Kjallin
Kull wrote:http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/07/01/logreglu_ladist_ad_skra_profun_radarmaelis/

Í ljósi neitunar mannsins og þess að ekkert var skráð um prófun ratsjártækis við hraðamælinguna taldi dómari ekki fært annað en að sýkna manninn.

Nokkuð merkilegt.

Hann kvittaði alveg uppá skýrsluna, en skrifaði aukalega "bíllinn kemst ekki svona hratt"

Ákærði kannaðist við að hafa fylgt lögregluvarðstjóranum inn í lögreglubifreiðina og að hafa þar ritað undir fyrrnefnda vettvangsskýrslu um umferðalagabrot. Ákærði bar að við undirritun skýrslunnar hefði honum yfirsést að hakað hefði verið við staðlaða setningu um að honum hefði sýnd umrædd hraðatala á skjá mælitækis. Staðhæfði ákærði að það hefði alls ekki verið raunin.

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 06:01
by SteiniDJ
Kjallin wrote:Hann kvittaði alveg uppá skýrsluna, en skrifaði aukalega "bíllinn kemst ekki svona hratt"

Er eitthvað hægt að votta það? Gæti ég kannski sagt, ef ég væri nappaður á 130, að bílinn minn kæmist ekki svona hratt? Mætti lögreglan eitthvað sannreyna það? Ekki halda að ég sé að gera mér einhverjar vonir, er bara að pæla hversu sterk vörn þetta er hjá kauða.

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 09:36
by Geirinn
SteiniDJ wrote:

Í þessu máli skiptir ekki máli hversu hratt maðurinn virkilega ók vegna þess að ekki var hægt að sanna að mælitækið virkaði rétt.

Þeir geta með engu móti áætlað hversu hratt hann ók með fullnægjandi hætti og því ekki hægt að kæra hann fyrir það.

Það sem lögreglan hefði mörulega getað gert er að kæra hann fyrir of mikinn hraða og svo háskalegan akstur eða álíka til vara.

Er nú samt ekki viss um að það hefði borið árangur.

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 11:48
by Stanky
Geirinn wrote:

Geta menn bara kært til vara ef hitt gengur ekki?

Svona einsog umsókn í framhaldsskóla?

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Thu 02. Jul 2009 11:54
by Geirinn
Stanky wrote:

As far as I know.....

Re: Getur borgað sig að neita skrifa undir hraðasektir...

PostPosted: Fri 03. Jul 2009 10:02
by Róbert-BMW
Ég var mældur á 152 km :x hjá litlu kaffi stofuni, var stopaður þar og þeir ætluðu að tauta einhvað en sýndu mér ekki neinar mælíngar eða neit og ég slap(var samt á 90 km þegar þeir mældu mig held að þetta sé frekar rétt að það þurfi að endur stilla þetta einhvað hjá þeim)...