Ég hef skrifað græju sem sækir bensínverð á heimasíður Esso, Olís og Orkunnar og safnar þeim saman og setti upp vefsíðu sem sýnir þessar upplýsingar sundurliðað í nokkra flokka (Esso, Olís, Orkan, 95 oktan, 98 oktan, Dísel, Sjálfsafgreiðslustöðvar og svo auðvitað allt í einni súpu).
Þetta ætti að vera tilvalið fyrir þá sem vilja aðeins fylgjast með bensínverðinu og spara kannski eitthvað í leiðinni. Nú eða þá bara fyrir þá sem vilja fylgjast með hinni "ógurlega miklu og æsispennandi samkeppni" í þessum bransa.
Hér er síðan: Bensínverð á Íslandi
Njótið vel!


