Page 1 of 1

Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 14:00
by Elnino
Hvaða efni eru menn að nota til að bera á leðursæti hjá sér?

Efni sem fást hér á landi þar sem ég nenni ekki að panta eitthvað að utan? :)

og er þetta ekki eitthvað sem allir geta gert? (hef aldrei áður á mínum 3 bíla ferli átt bíl með leðri)

kv.


Edit:

Hérna eru myndir af bílstjórasætinu. Flassið gerir "skemmdina" meira áberandi. Er ekki alveg svona slæmt ef maður sér þetta með berum augum.

Image
Image
Image
Image

Re: Bestu efnin við að bera á leður?

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 14:04
by gardara

Re: Bestu efnin við að bera á leður?

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 21:41
by Elnino
tjahh samkvæmt þessu er ég varla að nenna þessu :mrgreen:

er ekki einhver sem tekur að sér að lappa upp á leður? lítið mál að borga vel fyrir góða vinnu

Re: Bestu efnin við að bera á leður?

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 21:48
by Alpina
Hvaða litur er á þessu .....

Re: Bestu efnin við að bera á leður?

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 21:57
by Elnino
Alpina wrote:Hvaða litur er á þessu .....


svart leður :)

Re: Bestu efnin við að bera á leður?

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 22:04
by gunnar
Elnino wrote:tjahh samkvæmt þessu er ég varla að nenna þessu :mrgreen:

er ekki einhver sem tekur að sér að lappa upp á leður? lítið mál að borga vel fyrir góða vinnu


Farðu bara í Kaj Pind í Kópavogi og keyptu þér svona sett, þú ert enga stund að taka svona sæti í gegn og þarft ekkert að borga formúgu fyrir það.

Gerði þetta við mín sæti (E30 M3 + bucket in the back) og það kom mjög vel út!

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 23:08
by Elnino
setti 4 myndir inn. Náði ekki hinu sætinu þar sem vélin þurfti að verða batteríslaus.

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Sun 21. Jun 2009 23:08
by gardara
Kannski þessir geti græjað þetta fyrir þig viewtopic.php?f=1&t=34801&start=0

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Mon 22. Jun 2009 03:31
by sosupabbi
Kaj Pind er búið að loka held ég, var amk ekki á sama stað og venjulega þegar ég fór þangað síðast, fór bara í Hvítlist þarna í hverfinu hjá gamla bogl, og keypti svartan leðurlit og setti á sætin og munurinn er svakalegur, þrífur bara sætin með blautri tuski, berð litinn á með svampi og þurkar svo bara af með tusku ef það fer eithvað á innréttinguna.
Var ca klukkutíma að taka alla innréttinguna í 7unni með þessu og þetta virkar vel :thup:

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Mon 22. Jun 2009 07:08
by Alpina
Ég er með lit og feiti,, einnig svarta leðurfeiti,,

skal taka þetta að mér ef þú hefur áhuga ,, hef gert þetta margoft við mína eigin bíla

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Mon 22. Jun 2009 08:36
by Aron Fridrik
kaj pind er farið á hausinn síðast þegar ég vissi :|

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Wed 24. Jun 2009 18:32
by lacoste
Ekki skrýtið að þessi Kaj Pind er farin á hausinn! Algjör skítabúlla.. ljótt nafn og erfitt að segja það, þeir áttu aldrei neitt til, rándýrt, alltaf að lofa að draslið kæmi eftir næstu helgi og svo var öll búðin bara einn stigagangur wtf? :thdown:

Re: Bestu efnin við að bera á leður? edit: komnar myndir

PostPosted: Wed 24. Jun 2009 19:48
by iar
lacoste wrote:Algjör skítabúlla.. ljótt nafn og erfitt að segja það, þeir áttu aldrei neitt til


:lol: Ljótt nafn og erfitt að segja það! Þessi er með þeim betri! :lol: :santa:

PS: Hvernig segir maður lacoste? :tease: